Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég reyndar gleymdi að fá nánari útskýringar frá hv. þingmanni á því að Seltjarnarnes væri að þiggja fullt af þjónustu frá Reykjavíkurborg. Það væri áhugavert að heyra það í ræðu á eftir vegna þess að ég hef alveg heyrt þessa umræðu, sérstaklega frá Samfylkingunni í Reykjavík sem hefur viljað lýsa Seltjarnarnesi sem einhvers konar sníkjudýri á höfuðborginni. Ég hef ekki upplifað það, því að ég hef mætt í kjördæmið og rætt við kjörna fulltrúa á Seltjarnarnesi, að það sé vandamál.
Hv. þingmaður vísar hér í mismunandi framlög sveitarfélaganna per íbúa til velferðarmála. Eins og ég sagði áðan er hægt að færa rök með og móti höfuðborgarálaginu. Það er hægt. Það er bara þannig. Ég hélt kannski í einfeldni minni, líklega líka í bjartsýni minni, að við gætum sameinast um það að setja á þetta höfuðborgarálag sem fer þá líka til höfuðborgar Norðurlands, Akureyrarborgar, — ég myndi frekar vilja kalla hana það en svæðisborg sem mér finnst einhver óskapnaður í orðavali. Látum það liggja á milli hluta — að því gefnu að við værum ekki með þessa 14. gr. eins og hún liggur fyrir núna því hún er ósanngjörn. Hún er ósanngjörn, hún hefur óeðlilega hvata og hún er nákvæmlega sá hvati sem við ræddum áðan varðandi fasteignagjöldin, nákvæmlega sá hvati sem hæstv. ráðherra talaði um og fór mikinn hér við framsögu málsins þegar hæstv. ráðherra hélt því fram að verið væri að draga úr þessum skattahvata sem væri hvatinn til þess að hækka fasteignagjöldin. En í staðinn er verið að setja þennan hvata inn og það er mjög miður. Að því sögðu, af því að hv. þingmaður spyr mig sérstaklega út í höfuðborgarálagið, þá var ég í hjarta mínu búin að sætta mig við það, einmitt ef 14. gr. yrði löguð, en ég verð að viðurkenna að mér finnst gaman að hugsa til þess að hæstv. ráðherra, Eyjólfur Ármannsson, hafi verið að mæla fyrir þessu frumvarpi því ég þykist vita hver hafi verið afstaða hans til höfuðborgarálagsins á síðasta kjörtímabili.