156. löggjafarþing — 72. fundur,  27. júní 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[13:23]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Herra forseti. Við ræðum hér jöfnunarsjóðinn og í byrjun vil ég segja að það er alveg ástæða til að fagna heildarendurskoðun á reglum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og markmiði frumvarpsins um að styrkja gagnsæi og jöfnun á fjárhagslegu sjálfstæði sveitarfélaga. Ég kem hins vegar að þessu með aðeins öðrum hætti en ýmsir sem hafa tekið til máls í dag. Ég hef sem sagt ekki starfað á sveitarstjórnarstiginu, ég kem úr aðeins öðrum geira. Framsögumaður í þessu máli, hv. þm. Dagur B. Eggertsson, fór ágætlega yfir vinnu nefndarinnar, gestakomur og afstöðu meiri hluta nefndarinnar og það var mjög vel gert. Takk fyrir það.

Hv. þm. Ólafur Adolfsson fór einnig ágætlega yfir nefndarálit 1. minni hluta, sem ég á aðild að, þar sem við teljum bæði æskilegt og raunar nauðsynlegt að gera nokkrar breytingar á frumvarpinu og þó eina aðallega, ekki síst til að það nái markmiði sínu.

Mig langar að fara aðeins yfir það helsta. Í greinargerð segir, með leyfi forseta:„Frumvarp þetta er samið í innviðaráðuneytinu og lagt fram af ráðherra sveitarstjórnarmála til að ná fram markmiðum þingsályktunar nr. 2/154, um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024–2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.

Markmið og áherslur þingsályktunarinnar eru m.a. að sveitarfélög á Íslandi verði öflugur og sjálfbær vettvangur lýðræðislegrar starfsemi, að sjálfsstjórn og ábyrgð sveitarfélaga verði virt og að tryggð verði sem jöfnust réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu. Með samþykkt hennar var stigið mikilvægt skref í þá átt að efla sveitarstjórnarstigið hér á landi, auka sjálfbærni sveitarfélaganna og bæta enn frekar þjónustu við íbúana.

Í aðgerðaáætlun þingsályktunarinnar er kveðið á um aðgerð sem snýr að endurskoðun regluverks Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og er ætlað að stuðla að markvissari og réttlátari úthlutun úr sjóðnum, einfalda skipulag sjóðsins og stuðla að því að hann fylgi þróun sveitarfélagagerðarinnar. Markmið með endurskoðuninni er jafnframt að auka jöfnuð sem styður við langtímastefnumótun, m.a. á sviði opinberra fjármála.“

Nú vil ég byrja á því að fara inn í útsvarið sem er í raun og veru stærsta athugasemdin sem hv. framsögumanni meirihlutaálitsins er fullkunnugt um, held ég. Þarna tel ég að frumvarpið nái ekki markmiði sínu, eins og segir í greinargerð: Að sveitarfélög á Íslandi verði öflugur og sjálfbær vettvangur lýðræðislegrar starfsemi og að sjálfsstjórn og ábyrgð sveitarfélaga verði virt. Ég endurtek: sjálfsstjórn. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að sveitarfélög sem fullnýta ekki heimild til álagningar útsvars hljóti skerðingu á framlögum úr jöfnunarsjóði. Mér finnst eiginlega frekar leiðinlegt að þetta skuli vera enn þá inni í frumvarpinu vegna þess að ég held að við hefðum mögulega getað öll staðið að þessu hefði þetta ekki verið inni. Þannig að mér finnst það miður og ég vil bara segja það hér í þessum stól. Þetta er náttúrlega tekið fram í minnihlutaálitinu, reyndar ekki með þessum hætti. Nái þetta frumvarp fram að ganga má alveg kalla þetta í rauninni ríkisútsvar sem er sett í pólitískum tilgangi þar sem með þessu tekur ríkið raunar ákvörðunarrétt af sveitarfélögum. Það má alveg halda því fram. Ég veit að aðrir eru mögulega annarrar skoðunar en mér finnst það bæði rangt og ólíðandi og því má halda fram að með þessu ákvæði séu sveitarfélög sem ekki eru með útsvar í toppi í rauninni pínd til þess. Upp í hugann koma orð eins og þvingun og refsing, ekki glæpur og refsing heldur þvingun og refsing. Þetta ákvæði finnst mér skapa ranga hvata og raunar refsa sveitarfélögum sem reyna að reka sig vel og bregðast við ólíkum aðstæðum með ábyrgri skattlagningu. Í nefndaráliti 1. minni hluta, sem ég á aðild að, segir, með leyfi forseta: „Í því sambandi er vert að árétta stjórnarskrárvarinn sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga, sbr. 78. gr. stjórnarskrárinnar og sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Gagnrýni á umrætt ákvæði frumvarpsins birtist í umsögnum fjölda sveitarfélaga sem benda á að ákvæði um skerðingar vegna vannýtts útsvars hvetji til skattahækkana í stað þess að umbuna fyrir hagræði í rekstri. 1. minni hluti telur því brýnt að ákvæðið falli brott.“

Ef menn gætu sæst á að þetta ákvæði félli brott þá myndi skapast miklu meiri möguleiki á því að við gætum náð saman um þetta frumvarp. Þó svo að það séu fleiri atriði sem þyrfti að lagfæra þá er þetta það stærsta í mínum huga. Það kom skýrt fram í umfjöllun nefndarinnar og svörum frá innviðaráðuneytinu að útsvarsprósenta sveitarfélaga hefur ekki áhrif á greiðslur til jöfnunarsjóðs enda taka framlög til jöfnunarsjóðs mið af útsvarsstofni óháð álagningarprósentu. Það er því ekki rétt fullyrðing sem stundum er haldið fram, alla vega í mínum huga, að sveitarfélög sem fullnýta ekki heimild sína til álagningar útsvars séu að gera það á kostnað annarra sveitarfélaga. Aðstæður sveitarfélaga eru ólíkar og þess vegna er sérlega brýnt að tryggja þeim sveigjanleika til að nýta tekjustofna eftir því mati sem kjörnir fulltrúar sveitarfélaganna telja fyrir bestu. Það er á þessum grunni sem við í 1. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar teljum rétt og leggjum til að 3.–5. mgr. 14. gr. frumvarpsins falli brott. — Það er í raun og veru búið að leggja fram tillögu sem liggur fyrir þinginu nákvæmlega um það frá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, ef ég man rétt.

Ákvæðið um skerðingu vegna vannýtingar útsvars er ekki hluti af hinu nýja líkani um tekju- og útgjaldajöfnun sveitarfélaga heldur stendur það utan við líkanið og er þess vegna, alla vega í mínum huga, af pólitískum toga. Við í 1. minni hluta teljum það eðlilegri nálgun að ráðherra eða meiri hluti nefndarinnar tali bara hreint út og segi það bara upphátt að hér séu sveitarfélög skyldug til að setja útsvarið í topp, standi vilji þeirra til þess að öll sveitarfélög landsins leggi þetta hámarksútsvar á, segi það bara berum orðum því þetta er í mínum huga í rauninni merki dulbúinnar skattahækkunar á tugi þúsunda einstaklinga, ekki bara hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég heyrði að hv. framsögumaður nefndarálits talaði hér áðan í andsvörum um pólitíska hundaflautu, að sveitarfélög ákveði sína útsvarsprósentu sjálf, a.m.k. hingað til. Ég vona auðvitað að sveitarfélögin sem um ræðir fari ekki þá leið að setja útsvarið í topp ef þetta frumvarp nær fram að ganga. En hvað ættu þau annað að gera? Ég bara spyr: Hvað ættu þessi sveitarfélög annað að gera?

Það er jákvætt að nýtt úthlutunarlíkan taki tillit til flókinna útgjalda sveitarfélaga með stór þjónustusóknarsvæði. Slík nálgun styrkir eðlilega hvata til sameininga með því að koma til móts við fjölbreyttar og kostnaðarsamar áskoranir þeirra sveitarfélaga sem veita þjónustu langt út fyrir eigið íbúasvæði. Með þessu er dregið úr fyrri hindrunum til sameininga þar sem sameining hefur leitt til skerðingar framlaga úr jöfnunarsjóði. Það er alveg fullt af jákvæðum punktum í frumvarpinu þó svo að maður kannski einblíni oft á þá neikvæðu. Það er mikilvægt að kerfið virki með þeim hætti að það styrki sjálfbærar einingar og að hvatar til sameiningar séu raunverulegir en ekki veikir eða óljósir.

Lengi hefur verið kallað eftir breytingum á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að einfalda og auka gagnsæi í störfum sjóðsins og til að endurspegla betur breytingar á sveitarstjórnarstiginu, bæði á verkefnum og áskorunum sveitarfélaganna. Með frumvarpinu um ný heildarlög fyrir sjóðinn hefur regluverkið hins vegar ekki verið endurskoðað að fullu leyti og þótt margt sé gott þá er ég ein af þeim sem telja óheppilegt að ekki sé um heildarendurskoðun að ræða þegar verið er að setja heildarlög um sjóðinn. Sveitarfélög eru nefnilega misjafnlega í stakk búin til að takast á við vaxandi útgjöld, t.d. vegna velferðar. Því vill það verða að stærri sveitarfélög í einstaka landshlutum sitja uppi með þyngri byrðar af slíkum verkefnum og útgjöldum en minni sveitarfélög. Eitt af áherslumálum jöfnunarsjóðsfrumvarpsins er, sýnist mér, að viðurkenna slíkt með því sem nefnt er höfuðstaðarálag, en það dugir ekki öllum. Það eru stærri bæjarfélög, eins og t.d. Akranes í Norðvesturkjördæmi, sem hafa mörg einkenni þess í sínum rekstri. Ég hlustaði á framsögumann meirihlutaálitsins, hv. þm. Dag B. Eggertsson, áðan og ég veit það alveg að hann er fullkomlega meðvitaður um þetta og það er bara gott mál.

Ég vil af þessu tilefni grípa aðeins niður í umsögn Akraneskaupstaðar þar sem mér finnst sú umsögn endurspegla margar umsagnir sem bárust. Mér telst til að þær hafi verið tæplega 40 talsins. Ég ætla að fara í lokaorðin í umsögn Akraneskaupstaðar vegna þess að mér finnst þau draga þetta svolítið vel saman, með leyfi forseta:„Akraneskaupstaður hefur fullan skilning á að endurskoðun á jöfnunarframlagi á milli sveitarfélaga verður á hverjum tíma að endurspegla ákveðinn veruleika. En breytingar á slíkri jöfnun mega aldrei hegna þeim sveitarfélögum, sem í krafti stærðar sinnar, staðsetningu og annara aðstæðna, hafa byggt upp sterka og öfluga velferðar/félagsþjónustu.

Einnig er mikilvægt að umræða um frumvarpið leiði í ljós skýra stefnu sem tekur mið af breytingum sem eru fram undan á sveitarstjórnarstigi. Íbúum sveitarfélaga mun fjölga og sveitarfélögum mun fækka með sameiningu þeirra. Þjónustuframboð mun einnig þróast í takt við slíkar breytingar.

Megin vandamálið í markvissum og gangsæjum samanburði sveitarfélaga er skortur á áreiðanlegri tölfræði í velferðarþjónustu. Niðurbrot á samsetningu útgjalda, vegna velferðarþjónustu, er ekki fyrir hendi og því ekki einfalt að segja hvers vegna útgjöld hafa þróast með tilteknum hætti. Akraneskaupstaður, er vegna staðsetningar sinnar og stærðar í landshlutanum, sveitarfélag sem hefur nokkurs konar „höfuðstaðarþjónustuframboð“ í velferðarmálum. Það er veruleiki að íbúar sem geta, vegna þess að fjölskylduaðstæður útheimta mikla þjónustu velja sér búsetu út frá framboði og gæðum þjónustu. Minnt er á að sveitarfélög standa frammi fyrir mikilli útgjaldaaukningu vegna kjarasamninga. Lækkun framlaga úr jöfnunarsjóði þarf að ræða í því samhengi. Sveitarfélög með þröngan rekstur og þungar byrðar, t.d. vegna lífeyrisskuldbindinga, hafa fá úrræði til að bregðast við slíkum breytingum, önnur en að draga saman þjónustu við íbúa.

Akraneskaupstaður geldur sérstaklega fyrir það í þessu frumvarpi að engin tilraun er gerð til þess, af hálfu þeirra sem undirbúa frumvarpið, að leggja fram gagnsæja breytu til útjöfnunar á grunni velferðar. Akraneskaupstaður hefur í fyrri umsögnum bent á þennan veikleika.“

Þá er tekið fram að það hafi komið fram á fundi með ráðuneyti og stjórnendum jöfnunarsjóðs að slík tilraun hafi ekki verið gerð.

Ég held áfram, með leyfi forseta, þessari tilvitnun er alveg að ljúka:

„Verði frumvarpið að lögum á þessu þingi telur Akraneskaupstaður mikilvægt að löggjafinn fyrirskipi að lögð verði vinna í að greina mögulegar breytur vegna velferðarmála og hvernig þær verði nýttar til frekari þróunar jöfnunarkerfisins. Jafnframt telur sveitarfélagið mikilvægt að í nefndaráliti komi fram eindregin afstaða löggjafans um að það sé eitt af meginhlutverkum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að styðja sveitarfélögin í því að halda uppi öflugri velferðarþjónustu um allt land.“

Ég tek undir þessi lokaorð í umsögn Akraneskaupstaðar. Ég ætla að lýsa því aftur yfir að ég vona og óska í rauninni eftir því að tillit verði tekið til þessa og frekari greiningar verði gerðar, sérstaklega með tilliti til þjónustu sveitarfélaga vegna velferðarmála.

Þá segir í nefndaráliti 1. minni hluta: „Gert er ráð fyrir sérstöku jöfnunarframlagi vegna höfuðstaðarhlutverks Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar. Samkvæmt skýrslu starfshóps sem frumvarpið byggist á eru þessi sveitarfélög með sérstaka útgjaldaþörf sem fellur ekki að hefðbundnum úthlutunar líkönum, m.a. vegna þjónustu vegna félagsþjónustu og menningarstarfsemi.“

Ég vil bara halda því til haga að Reykjavíkurborg nýtur líka ýmiss konar tekna einmitt af því að vera höfuðborg landsins og hefur mun meiri tekjumöguleika en flest önnur sveitarfélög landsins og þá er ég að tala sérstaklega um landsbyggðina. Það er því bara staðreynd sem við þurfum að hafa líka í huga með öllu hinu. Þótt við í 1. minni hluta sýnum sjónarmiðum höfuðstaðarálags skilning þar sem kostnaði vegna þessa er misskipt milli sveitarfélaga er raunveruleikinn samt þannig að það eru fleiri sveitarfélög en þessi tvö sem bera meiri kostnað af málaflokknum án þess að það sé komið til móts við þessi sveitarfélög í þessu frumvarpi — eins og ég fór í áðan varðandi Akranes. Það fór ekki fram greining á kostnaði annarra sveitarfélaga vegna málaflokksins í vinnu nefndarinnar og þess vegna er hvatt til þess að það fari fram greining á sambærilegu félagsþjónustu- og menningarálagi annarra sveitarfélaga. Um er að ræða safnsveitarfélög eins og ég er búin að nefna oft, Akranes, Mosfellsbæ, Ísafjarðarbæ og nokkur fleiri sveitarfélög um landið. Ég tel bæði réttlátt og brýnt að mæta sérstakri útgjaldaþörf sem þessari í gegnum úthlutunarlíkanið í stað þess að taka tvö sveitarfélög sérstaklega út fyrir mengið með fjárstuðningi án beins tillits til kostnaðar.

Eins og ég kom aðeins inn á áðan vil ég hvetja til þess að vinna fari af stað nú þegar í að gera þessar greiningar sem þörf er á og í framhaldi sett í reikniformúluna og aftur í framhaldi komið á jafnræði þessara sveitarfélaga við þau sveitarfélög sem nú munu fá höfuðstaðarálag, nái þetta frumvarp fram að ganga. Ég held að það sé alveg fullur vilji til þess og verður sennilega tekið í næsta skrefi.

Síðan er það varðandi Grindavíkurbæ. Það er nauðsynlegt að tryggja framhald fasteignaskattsframlags til bæjarins fyrir árið 2025 í ljósi náttúruvár og tímabundins tekjutaps sveitarfélagsins. Ef svo færi að þetta frumvarp næði ekki fram að ganga þá verður að tryggja stuðning við Grindavíkurbæ með sérstakri tillögu þar um. Þetta er brýnt og ég held að við séum öll sammála um það, alla vega vona ég það.

Síðan vil ég aðeins koma inn á gildistökuna og vísa aftur til umsagnar Akraneskaupstaðar. Það eru svo margar umsagnir að maður hefur kannski ekki gripið allt sem hefur komið inn en það er tillaga í umsögn Akraneskaupstaðar sem mér finnst bæði skynsamleg og nauðsynleg og bara ef hv. framsögumaður meirihlutaálitsins gæti komið hingað í andsvar við mig, alla vega varðandi það, þá væri það frábært.

Akraneskaupstaður kemur með skynsamlega og í raun nauðsynlega ábendingu varðandi gildistöku. Akraneskaupstaður bendir á að mikilvægt sé að breytingar á jöfnunarkerfinu eigi sér aðdraganda þannig að sveitarfélög geti aðlagað rekstur sinn að þeim. Það er bent á að sveitarfélög hafi þegar samþykkt áætlanir fyrir árin 2026–2028 í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2025. Þess vegna telur Akranes skynsamlegt að gildistaka breytinga miðist við 1. janúar 2027 og að aðlögunartíminn verði lengdur úr fjórum árum í sjö en eins og það er skrifað í frumvarpinu er gildistakan eftir sex mánuði. Mér finnst þetta skynsamlegt og raunar nauðsynlegt vegna þess að það er erfitt fyrir sveitarfélög að bregðast við þegar svo stutt er í gildistöku, nái þetta frumvarp fram að ganga í þessari mynd. Það er svo erfitt fyrir þau að bregðast við þannig að ég væri (Forseti hringir.) mjög til í að fá umræðu um þetta. Við höfum ekki rætt þetta mjög mikið í nefndinni, ég minnist þess alla vega ekki, ég hef þá ekki verið á fundinum.