Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir annað andsvar. Ég tek undir það. Ég vona, hvernig sem við förum að því, að menn nái samkomulagi um að fella þessa grein, 3.–5. mgr. 14. gr., brott. Þá erum við á miklu betri stað og sennilega getum við — ég ætla ekki að tala fyrir hönd annarra en fyrir mitt leyti þá væri hægt að taka þetta frekar hratt hérna í gegn. Ég horfi hér bæði á formann nefndarinnar og framsögumann þannig að ég hvet bara til þess að við reynum að sameinast um þetta. Ef þetta verður til að sameina okkur held ég að það sé alveg þess virði vegna þess að, eins og ég sagði áðan, okkur veitir ekkert af því að vera með samstöðu í alla vega einhverjum málum í þessu húsi.