Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég átta mig á því að hún kemur úr sveitarstjórnargeiranum. Er það ekki rétt hjá mér? (Gripið fram í.) Já, hún kemur úr sveitarstjórnargeiranum. Ég vil kannski frekar af þessu tilefni ræða þetta höfuðstaðarálag eða höfuðstaðarhlutverk sem birtist varðandi Reykjavíkurborg og Akureyrarbæ. Það er fullt af öðrum sveitarfélögum eða nokkur önnur sveitarfélög sem sinna sambærilegu hlutverki og í þessu frumvarpi eru þau t.d. skilin eftir. Það er ekkert vísvitandi gert, geri ég ráð fyrir. Það þurfa bara að eiga sér stað útreikningar og samanburður og svo þarf að setja þetta inn í reiknilíkanið þannig að þeim verði líka bætt öll þessi þjónusta sem þau eru að sinna.