156. löggjafarþing — 72. fundur,  27. júní 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[13:58]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir ágæta ræðu. Þetta er búin að vera áhugaverð umræða hér í dag sem sér ekki fyrir endann á og er rétt að fara af stað myndi ég segja. Það hefur komið fram og við vitum það að það eru jafnvel örfáir einstaklingar í landinu öllu, það hefur komið fram á vettvangi sveitarstjórnarmála, á fjármálaráðstefnum og annars staðar að þeir eru teljandi á fingrum annarrar handar þeir aðilar sem kunna reglur sjóðsins og geta útskýrt þær svo vel sé. Ég tek undir með hv. þingmanni að hér er um bein skattahækkunaráform að ræða sem er náttúrlega þvert á fyrri yfirlýsingar þeirra sem nú eru með völdin, þessarar ríkisstjórnar. Þetta beinist auðvitað beint að heimilunum og það má ekki gera lítið úr því hverjar upphæðirnar eru, þær eru einhverjar og það er mismunandi eftir sveitarfélögum hversu háar þær eru. Þannig að þarna náttúrlega grundvallast líka bara gjörólík afstaða stjórnmálafólks til skattfjár sem rennur til sveitarfélagsins eða til þeirra tekna sem einstaklingarnir afla. Við höfum horft upp á og erum að sjá ýmis merki um það að verið er að hækka skatta á fyrirtæki og einstaklinga. Mig langar að fá viðhorf þingmannsins til þess, afstöðu hans til þess hvort það sé eitthvað hægt að skilja það öðruvísi en að hér sé um beina skattahækkun á heimilin að ræða. (Forseti hringir.) Er þetta enn eitt merkið um slíkt samhliða t.d. afnámi samsköttunar og fleira sem hefur komið til?