156. löggjafarþing — 72. fundur,  27. júní 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[14:03]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

sVirðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Nú er hv. þingmaður í nefndinni sem um málið hefur fjallað, ekki sú sem hér stendur. En það er augljóst að ýmsum hlutum er velt upp í þessu kerfi þar innan í álitum minni og meiri hluta og í frumvarpinu sjálfu og ekki síst í umsögnunum sem eru í tugum taldar. Auðvitað tek ég undir það og get líklega flokkast undir þann stjórnmálamann sem stundar samkvæmt einhverjum hérna inni hundaflautustjórnmál með því að hafa haft forgöngu um það í því sveitarfélagi sem ég hef starfað í að hafa ekki álögur sem þessar í botni. Við erum að tala um öll Kragasveitarfélögin þar sem hátt í 90.000 manns búa.

En mig langar til að spyrja þingmanninn eftir þessa vinnu í nefndinni og umsagnirnar og yfirferð þeirra hvort hún telji þörf á því (Forseti hringir.) að endurskoða þetta kerfi í heild sinni, breyta því í heild sinni og endurskoða allt frá grunni.