156. löggjafarþing — 72. fundur,  27. júní 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[14:05]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þingmaðurinn spyr hvort ég telji þörf á því að endurskoða kerfið í heild sinni. Þetta á náttúrlega að vera heildarendurskoðun en þetta er ekki heildarendurskoðun. Ég tel að það þurfi að fara í miklu dýpri og meiri greiningar varðandi sérstaklega önnur sveitarfélög sem ég nefndi í ræðu minni áðan varðandi velferðarþjónustuna. Ég bind vonir við að það verði gert, ég svo sem veit það ekki en ég bind vonir við það vegna þess að þó að þetta sé heildarendurskoðun þá er þetta ekki heildarendurskoðun og ég held að menn hljóti að vilja bæta það sem upp á vantar. Ég tek því undir það að það má alveg segja endurskoðun í heild sinni þó að það þurfi kannski ekki að endurskoða alveg allt, en einhvern hluta.