fæðingar- og foreldraorlof.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, EES-reglur o.fl.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Frumvarpinu er í fyrsta lagi ætlað að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA varðandi innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa og koma um leið til móts við foreldra sem starfa á innlendum vinnumarkaði en hafa starfað í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins á viðmiðunartímabili tekna samkvæmt lögunum.
Í öðru lagi er frumvarpinu ætlað að bregðast við úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 485/2022 frá 18. nóvember 2022, um óskýrt orðalag b-liðar 2. mgr. 22. gr. laganna.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust tvær umsagnir auk minnisblaðs frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Nefndin fjallaði um nýtt ákvæði í d-lið 2. gr. frumvarpsins um foreldra sem starfað hafa að hluta eða að öllu leyti í öðru aðildarríki á viðmiðunartímabili tekna samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Í umsögnum til nefndarinnar komu fram ábendingar um að sú útreikningsaðferð sem d-liður 2. gr. frumvarpsins kvæði á um væri ekki í samræmi við þá útreikningsaðferð sem fram kemur í ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins frá 29. júlí 2022. Töldu umsagnaraðilar mikilvægt að fá skýringar á því af hverju ekki hefði verið farin sú leið sem álit EFTA-dómstólsins kvað á um. Nefndin óskaði eftir minnisblaði frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um afstöðu til þeirra umsagna sem borist hefðu um frumvarpið. Í minnisblaði ráðuneytisins er m.a. vísað til þess að með frumvarpinu sé lagt til að í 4. mgr. 23. gr. laganna verði kveðið á um undantekningu frá meginreglu laganna um viðmiðunartímabil tekna vegna greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði til starfsmanns og/eða sjálfstætt starfandi sem fram kemur í 1.–3. mgr. 23. gr. laganna. Jafnframt er í minnisblaðinu vísað til þess sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að breytingin sé lögð til í ljósi athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA þess efnis að foreldrar sem hafi unnið í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins á viðmiðunartímabili tekna samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof skuli ekki vera verr settir en aðrir hvað varðar fjárhæð greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði vegna flutninga til landsins.
Meiri hluta nefndarinnar þykir einsýnt að orðalag ákvæðis d-liðar 2. gr. frumvarpsins sé ekki í samræmi við orðalag ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins frá 29. júlí 2022 sem athugasemdir Eftirlitsstofnunar EFTA byggjast á. Meiri hlutinn telur að sú leið sem farin er í frumvarpinu nái því markmiði að koma til móts við foreldra sem starfa á innlendum vinnumarkaði en hafa starfað í öðru ríki innan EES-svæðisins á viðmiðunartímabili tekna samkvæmt lögunum. Jafnframt sé komið í veg fyrir að þeir foreldrar séu verr settir en aðrir hvað varðar fjárhæð greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði vegna flutnings til landsins.
Meiri hlutinn tekur fram að ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins frá 29. júlí 2022 felur í sér túlkun á EES-gerðinni sem um ræðir og að sú aðferð sem ráðgefandi álit dómstólsins kveður á um verði ekki leidd beint af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa. Að mati meiri hlutans er sú leið sem farin er í frumvarpinu við innleiðingu á þeim réttindum sem kveðið er á um í reglugerðinni skynsamleg og til þess fallin að rétta hlut þeirra sem annars féllu milli skips og bryggju í núgildandi löggjöf og jafnframt koma til móts við athugasemdir EFTA-dómstólsins.
Meiri hluti nefndarinnar beinir því til ráðherra að halda áfram vinnu við að tryggja samræmingu íslenskrar löggjafar við EES-rétt á sviði fæðingarorlofsmála.
Þá fjallaði nefndin um gildistökuákvæði frumvarpsins en í umsögn BHM kom fram ábending um að ekki væri gert ráð fyrir að stjórnvöld gætu tekið eldri, sambærileg mál upp að nýju sem afgreidd hefðu verið á grundvelli núgildandi og eldri laga. Í umsögninni kom fram hvatning til stjórnvalda þess efnis að veita foreldrum sem urðu fyrir skerðingu á grundvelli núgildandi laga sanngjarna leiðréttingu. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að breyting sú sem lögð er til í d-lið 2. gr. frumvarpsins hafi áhrif á tiltölulega fámennan hóp foreldra.
Meiri hlutinn telur ekki forsendur til annars en að lögin taki gildi við samþykkt þeirra og gildi um þá foreldra sem rétt eigi til greiðslna samkvæmt lögunum frá því tímamarki líkt og frumvarpið kveður á um.
Að framansögðu virtu leggur meirihluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir álit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Jón Gnarr, Jónína Björk Óskarsdóttir, Sigríður Á. Andersen og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.
Frú forseti. Þetta er mikilvægt mál sem er verið að leiða hér inn. Það er verið að taka á þeirri stöðu þegar fólk er að koma inn á íslenskan vinnumarkað og horft til þeirra tekna sem fólk hefur notið hér á landi og það er auðvitað bara mjög mikilvægt að fólk falli ekki milli skips og bryggju í þessum efnum. Það er því afar mikilvægt að stíga þetta skref og bæta inn þessari réttarbót í lögin. Það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir foreldra sem eignast börn og eru að koma inn á íslenskan vinnumarkað. Síðan er það auðvitað alltaf mikilvægt, eins og við segjum í okkar nefndaráliti, að halda áfram þessari vegferð að betrumbæta lög um fæðingar- og foreldraorlof þannig að réttindi foreldra séu trygg og hagsmunir foreldra séu sem bestir í þessu annars tiltölulega flókna fyrirkomulagi sem er verið að nota. Meiri hluti velferðarnefndar telur mjög brýnt að við klárum þetta mál og það verði samþykkt hér í þinginu.