fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og framsögumanni málsins fyrir ágæta ræðu og samantekt. Það er auðvitað gott að við séum hér samankomin til að bregðast við þessu áliti og dómi Hæstaréttar til þess að tryggja að íslenskir EES-borgarar njóti sama réttinda og aðrir EES-borgarar. Mig langaði aðeins að spyrja hv. þingmann út í umsögn frá BHM þar sem kemur fram að BHM styðji breytingarnar en telji mikilvægt að ráðuneytið, með leyfi forseta, „veiti frekari skýringar á nokkrum atriðum, m.a. um val á útreikningsaðferð og hvort fyrirhugað sé að endurskoða eldri mál.“ Mig langaði til að biðja hv. þingmann um að gefa okkur nánari upplýsingar um hvort nægilega hafi verið komið til móts við BHM, e.t.v. með gestakomum eða frekari útreikningum sem hafa verið lagðir fram hjá hv. nefnd.