fæðingar- og foreldraorlof.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur kærlega fyrir hennar andsvar og þessa spurningu. Í jafn viðamiklu máli og hér er og mikilvægt þá auðvitað skiptir máli að rýna vel í þær forsendur sem eru að baki og þá stöðu sem kemur upp þegar fólk er að ferðast á milli landa, vinnur á einum vinnumarkaði og kemur til landsins og hefur störf hér, og að það njóti að lágmarki þeirrar tryggingaverndar sem við erum að bjóða okkar fólki sem hér býr og starfar. Varðandi þær aðferðir sem hv. þingmaður spyr út í, hvað varðar greiningar á launum viðkomandi og þá umsögn sem kom frá BHM, þá er það auðvitað ein leið sem er hægt að fara, þ.e. að rýna þessa stöðu betur. Ég skil vel þær athugasemdir sem komu fram frá Bandalagi háskólamanna. Það er mikilvægt að finna leiðina sem fangar í raun og veru laun viðkomandi einstaklinga þannig að réttur til fæðingarorlofs sé til staðar og að greiðslur sem þar komi fram endurspegli stöðu viðkomandi. Í frumvarpinu er tekið á þessu á þann hátt að það er verið að horfa til þess þegar einstaklingur hefur starfað skemur en fjóra mánuði hér á landi. Í núgildandi lögum myndi viðkomandi ekki njóta réttar en með þessari breytingu er hins vegar verið að tryggja að það sé horft til launa viðkomandi á þeim mánuði, á þeim fyrsta mánuði þegar hann kemur til landsins, það þurfi þar af leiðandi að reikna út réttinn miðað við þær forsendur. Ég tel að það sé mikilvægt og það komi til móts við þær ábendingar sem við höfum fengið, nái þessu nægilega vel.