156. löggjafarþing — 73. fundur,  28. júní 2025.

fæðingar- og foreldraorlof.

225. mál
[10:14]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langaði í síðara andsvari að spyrja hv. þingmann sömuleiðis út í umsögn Samtaka atvinnulífsins sem, með leyfi forseta, gera ekki athugasemdir við efni frumvarpsins eða markmið þess en kalla aftur á móti eftir því að það launaviðmið sem lagt var til grundvallar við beitingu laganna verði rökstutt nánar. Þannig lúta athugasemdir samtakanna að því að það þurfi að vera betur skýrt hvort horfa eigi til eigin launa viðkomandi einstaklinga á Íslandi eða sambærilegra launþega við ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs. Samtökin telja að rétt væri að sjóðurinn hefði heimild til að miða ákvörðun sína við tekjur sambærilegra launþega með tilliti til menntunar og reynslu, í þeim tilvikum þar sem heildarlaun umsækjenda eru mun hærri en almennt gerist í þeim störfum, eins og við þekkjum ágætlega. Gæti hv. þingmaður svarað því hvort og þá hvernig hefur verið komið til móts við eða leitað svara við spurningum og athugasemdum Samtaka atvinnulífsins?