fæðingar- og foreldraorlof.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur kærlega fyrir hennar seinna andsvar og mjög góða spurningu um málið. Það er rétt eins og fram hefur komið að þessar tvær umsagnir bárust til hv. velferðarnefndar og við erum svo sem á svipaðan hátt að tala um einmitt þennan samanburð, til hvaða launa eigi að horfa þegar viðkomandi kemur til starfa á innlendum vinnumarkaði. Það er auðvitað hægt að fara ýmsar leiðir og ein leiðin er að horfa til launa í ákveðnum atvinnugreinum. Það er hægt að horfa til launa viðkomandi einstaklings hér á landi. Það er hægt að horfa til launa þeirra sem eru erlendis og það geta verið misjafnar afleiðingar og útreikningar í þessu eftir því frá hvaða landi viðkomandi kemur. Þar af leiðandi, vegna þess að laun eru misjöfn í löndum, þarf að horfa til þess hvað endurspeglar stöðuna hvað best. Með þessu fyrirkomulagi sem frumvarpið tekur á er tryggt að það sé horft til launa viðkomandi einstaklings á innlendum vinnumarkaði en það þarf hins vegar líka að horfa til þeirra upplýsinga sem hann þarf að skila inn til að rýna í þá stöðu sem hefur verið hjá honum þar sem hann starfaði áður. Ég held að með þessu móti séum við að ná að stíga stórt skref, mikilvægt skref, til að tryggja hagsmuni einstaklingsins. Hvort það séu til aðrar færar leiðir eða betri þá má auðvitað alltaf deila um það en ég tel að þessi leið fangi þessar athugasemdir eða nái utan um þetta verkefni eins og staðan er núna.