156. löggjafarþing — 73. fundur,  28. júní 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[14:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld sem fela í sér aðgerðir gegn peningaþvætti, viðurlög o.fl.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum ákvæðum sem snerta skatta, tolla og gjöld í sex lagabálkum. Flestar breytinganna varða ákvæði tollalaga, nr. 88/2005, til að mynda hvað varðar skyldu til að tilkynna tollyfirvöldum um flutning á reiðufé og handhafabréfum til og frá landinu og beitingu viðurlaga þegar aðilar sinna ekki tilkynningarskyldunni. Sömuleiðis er lögð til breyting á heimildum tollyfirvalda til annars vegar að leita í innrituðum farangri farþega og áhafnar að viðkomandi fjarstöddum og hins vegar að beita lögaðila viðurlögum vegna brota á 172. gr. tollalaga. Jafnframt eru lagðar til breytingar á tollalögum, lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, í kjölfar álita umboðsmanns Alþingis um málskotsrétt til yfirskattanefndar í þeim tilvikum þegar ríkisskattstjóri synjar um beiðni um endurupptöku á grundvelli stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, eða synjar um breytingu á fyrri ákvörðun sinni. Að lokum má nefna breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004, til hækkunar á fjárhæð jöfnunargjalds

Nefndin fjallaði ítarlega um málið, fékk á sinn fund gesti og það bárust að sjálfsögðu umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Nefndin fjallaði sérstaklega um heimild til að gera lögaðila sekt vegna brota gegn 172. gr. tollalaga, en kveðið er á um það í c-lið 11. gr. frumvarpsins. Í sameiginlegri umsögn SVÞ og Samtaka atvinnulífsins kemur fram að fyrirhuguð breyting skv. c-lið 11. gr. frumvarpsins sé ekki réttlætanleg með vísan til tilmæla Financial Action Task Force, FATF, né dæma sem tilgreind eru í athugasemdum með frumvarpinu. Þá leggja samtökin til að í 3. mgr. 172. gr. tollalaga verði kveðið á um saknæmisskilyrðið stórfellt gáleysi í stað gáleysis.

Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis til nefndarinnar kemur fram að það sé rétt að tilmæli FATF, sem slík, séu ekki tilefni fyrirhugaðrar breytingar skv. c-lið 11. gr. frumvarpsins á 172. gr. tollalaga. Bendir ráðuneytið á að skattsvik, þar með talin brot gegn 172. gr. tollalaga, séu talin algengustu frumbrot peningaþvættis á Íslandi og greind áhætta af þeim metin mikil í áhættumati ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka frá desember 2023. Ráðuneytið rekur að í c-lið 11. gr. felst að lögaðilar sem njóta hagnaðar af broti gegn 172. gr. tollalaga, eða brotið er drýgt til hagsbóta fyrir þá, geta þurft að þola viðurlög í formi sekta. Þess háttar viðurlagaheimild er að finna víða í lögum eins og vikið er að í 5. kafla greinargerðar frumvarpsins. Ráðuneytið tekur fram að markmið með fyrirhugaðri breytingu sé að tryggja fullnægjandi varnaðaráhrif gagnvart lögaðilum vegna brota gegn 172. gr. tollalaga, þ.e. draga úr eða afstýra brotum. Þá bendir ráðuneytið á að það verði, eftir sem áður, heimilt að beita starfsmenn eða fyrirsvarsmenn viðurlögum vegna brota gegn þessari grein. Að lokum víkur minnisblað ráðuneytisins að því að markmið með breytingum á saknæmisskilyrðum vegna brota gegn 172. gr., sem breytt var með lögum nr. 59/2017, voru til þess að auka varnaðaráhrif ákvæðisins og að réttar upplýsingar um innflutning berist tollyfirvöldum. Samkvæmt því sem hér hefur verið rakið telur meiri hlutinn ekki tilefni til að leggja til breytingar á c-lið 11. gr. frumvarpsins eða frekari breytingar á 172. gr. tollalaga.

Þá hefur nefndin fjallað um jöfnunargjald vegna dreifingar á raforku, en í 22. gr. frumvarpsins er lögð til hækkun á jöfnunargjaldinu sem taka á gildi 1. júlí 2025, sem er í næstu viku. Í greinargerð með frumvarpinu er fjallað um nauðsyn þessara hækkana til að ná fram fullri jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku á seinni hluta ársins 2025.

Samtök fyrirtækja í landbúnaði og Bændasamtökin árétta í umsögnum sínum mikilvægi jöfnunar kostnaðar við dreifingu raforku og nauðsyn þess að tryggja jafnræði milli landsvæða. Bæði samtökin benda þó á að erfitt sé að meta áhrif gjaldsins og hvort breytingin skili raunverulegum árangri í ljósi þess að hingað til hafi gjaldskrár í dreifbýli tekið hækkunum í kjölfarið. Í umsögnum til nefndarinnar voru ýmis sjónarmið reifuð um hvernig heppilegt væri að ná markmiðum um jöfnun á dreifikostnaði með öðru móti en lög nr. 98/2004 kveða á um.

Meiri hlutinn tekur fram að breyting á umræddum fjárhæðum í 22. gr. frumvarpsins falli undir málefnasvið nefndarinnar. Hins vegar fellur endurskoðun eða breyting á fyrirkomulagi jöfnunar dreifikostnaðar hvorki undir málefnasvið hennar né efni þessa frumvarps og nefndinni því ekki kleift að leggja til breytingar þess efnis. Meiri hlutinn fagnar því þó að fyrirkomulagið sé til skoðunar og bendir á að fram komi í minnisblaðinu að til álita komi að niðurgreiðslur atvinnuvegaráðuneytis til garðyrkjubænda vegna flutnings- og dreifingarkostnaðar raforku nái einnig að hluta til jöfnunargjalds raforku, sömuleiðis að umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur haft útfærslu á jöfnunargjaldinu til skoðunar, m.a. þátttöku stórnotenda. Þá má finna umfjöllun í minnisblaðinu um annars vegar skýringar Rariks varðandi ástæður fyrir hækkun á raforkuverði í dreifbýli og hins vegar skýringu á eftirlitshlutverki Umhverfis- og orkustofnunar með gjaldskrám samkvæmt raforkulögum. Að lokum bendir meiri hlutinn á að umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið tekur fram í minnisblaðinu að hluti af vanda jöfnunargjaldsins sé að upphæðin hefur ekki fylgt verðlagsþróun og einungis tvívegis verið uppfærð frá árinu 2015. Ráðuneytið hafi í hyggju að taka upp nýtt verklag og uppfæra jöfnunargjaldið árlega með hliðsjón af verðlagsbreytingum.

Nefndin fjallaði að auki um ábendingar sem fram komu í umsögn Deloitte Legal og taldi meiri hlutinn að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneyti að þær kölluðu ekki á breytingar. Ég ætla að vísa hér til ítarlegri umfjöllunar í áliti meiri hlutans.

Meiri hlutinn gerir nokkrar breytingar á frumvarpinu og ég ætla að fara yfir það í stuttu máli.

Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar orðalag 16. og 19. gr. frumvarpsins til samræmis við minnisblað fjármála- og efnahagsráðuneytis. Í 16. og 19. gr. frumvarpsins er vísað til viðeigandi málsgreina hvað varða tímafresti og talið rétt að hnykkja á sex ára tímafrestum með því að auka við orðinu „lengst“, það er svona til skýringar.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar framlengingu á greiðslufresti aðflutningsgjalda á innfluttum ökutækjum í eigu úkraínskra flóttamanna. Efnahags- og viðskiptanefnd flutti frumvarp til breytinga á tollalögum sem varð að lögum nr. 51/2024. Með frumvarpinu bættist við tollalög nýtt ákvæði til bráðabirgða XIX þar sem kveðið var á um sérstaka framlengingu á greiðslufresti aðflutningsgjalda í allt að 12 mánuði á innfluttum ökutækjum í eigu úkraínskra ríkisborgara sem hafa stöðu flóttamanna og hafa flutt inn ökutæki sem þeir áttu þegar þeir bjuggu í Úkraínu. Í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneyti segir að í ljósi stríðsins sem enn geisar í Úkraínu séu flóttamenn þaðan áfram í viðkvæmri stöðu og þar af leiðandi sé lagt til að ákvæði til bráðabirgða XIX verði framlengt um eitt ár. Með þessu verður hægt að óska eftir greiðslufresti til og með 31. desember 2025 og framlengingin geti þar af leiðandi orðið lengst til 31. desember 2026. Meiri hlutinn tekur undir það sem fram kemur í minnisblaðinu, að framlenging þessi sé skýr viðurkenning á áframhaldandi erfiðleikum Úkraínumanna og sé í samræmi við ályktun Alþingis um stefnu um stuðning Íslands við Úkraínu 2024–2028. Leggur meiri hlutinn til breytingu í samræmi við framangreint.

Þá er í þriðja lagi lögð til breyting er varðar viðbótarhúsnæðisstuðning til tekju- og eignaminni Grindvíkinga og að hann teljist ekki til tekna. Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að lagt sé til að viðbótarhúsnæðisstuðningur til tekju- og eignaminni Grindvíkinga, sem veittur er vegna leigu húsnæðis á tímabilinu 1. apríl 2025 til og með 30. nóvember 2025 á grundvelli 2. mgr. 3. gr. laga um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, nr. 40/2024, teljist ekki til skattskyldra tekna samkvæmt lögum um tekjuskatt. Samhliða er lagt til að umræddur húsnæðisstuðningur teljist ekki til tekna við ákvörðun greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007. Þannig fari um viðbótarhúsnæðisstuðning til tekju- og eignaminni Grindvíkinga með sama hætti og um annan húsnæðisstuðning til leigjenda, þ.e. húsnæðisbætur samkvæmt lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, og sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Þá átti sama við um sérstakan húsnæðisstuðning samkvæmt lögum um sérstakan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, nr. 94/2023. Meiri hlutinn tekur undir framangreint og leggur til breytingu þess efnis að ný ákvæði til bráðabirgða bætist við lög um tekjuskatt, lög um almannatryggingar og lög um félagslega aðstoð. Meiri hlutinn áréttar jafnframt það sem fram kemur í minnisblaðinu, að nauðsynlegt sé að afturvirkni skattívilnana vegna viðbótarstuðnings til tekju- og eignaminni Grindvíkinga sé tryggð og leggur því til að gildistaka bráðabirgðaákvæðanna verði 1. maí 2025.

Að lokum er í fjórða lagi lögð til breyting er varðar fyrirsögn á nýrri 116. gr. tollalaga, sbr. 8. gr. frumvarpsins, og orðalagsbreytingu á c-lið 11. gr. sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.

Að öðru leyti er bara vísað til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Pawel Bartoszek, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir

Við fjölluðum mikið um þetta mál í efnahags- og viðskiptanefnd og það var bara gott samtal meðal allrar nefndarinnar þótt meiri hlutinn skrifi eingöngu undir þetta álit. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason mun gera grein fyrir áliti minni hlutans hér á eftir, geri ég ráð fyrir. En það var kannski eitt mál sem mér fannst við þurfa að taka sérstaklega til okkar og það er að taka undir áhyggjur Bændasamtakanna og samtaka fyrirtækja í landbúnaði þess efnis að jöfnunargjald raforku skili sér eingöngu tímabundið til neytenda og að fyrirtækin hækki gjaldskrár sínar í kjölfarið. Það bárust af því fréttir í gær að hækkun á raforku væri einn af þeim undirliggjandi þáttum sem eru að ýta undir verðbólguna og ég tel að við verðum að taka þessu alvarlega. Við sjáum þetta líka í öðrum málum þar sem við erum að styrkja, t.d. loftbrúin, það er alveg augljóst að flugfargjöld hækkuðu verulega með loftbrúnni. Eins og hún er góð og nauðsynleg og mikilvæg fyrir íbúa landsbyggðarinnar þá verðum við að fylgjast með þessu og þess vegna vil ég undir umræðum um þetta mál nefna hér þetta verkefni sem atvinnuvegaráðuneytið er að vinna í, að koma á fót sérstöku markaðs- og neytendateymi sem hefur það hlutverk að vakta og greina þróun vísitölu neysluverðs og þessa undirliggjandi áhrifaþætti. Það er þessi vantrú neytenda og almennings að þegar stjórnvöld eru að reyna að skila ávinningi til þeirra verði hann tekin annars staðar. Þetta snýst ekki bara um raforku, við sjáum það líka í umræðunni um kílómetragjaldið að umsagnaraðilar eiga erfitt með að trúa því að lækkun á eldsneytisverði skili sér til neytenda. Ég vil því bara brýna okkur sem hér stöndum og hér störfum að taka þetta alvarlega.

Þetta mál sem hér um ræðir verða ég að segja að er dálítið fjölbreytt og tekur á mörgum málum. Til að draga það saman í lokin tekur þetta á þó nokkrum málum; það er þessi tilkynningarskylda vegna flutnings á fjármunum, eins og ég nefndi áðan, það er verið að taka til í tollalögum, það er verið að uppfæra tilvísanir og það er verið að bregðast við áliti umboðsmanns Alþingis og styrkja málskotsréttinn. Svo er stóra málið auðvitað þetta jöfnunargjald raforku. Þetta er gríðarlegt hagsmunamál fyrir landsbyggðina og ég vænti mikils stuðnings þegar þetta mál gengur svo til atkvæðagreiðslu. Þetta skiptir máli, verulega miklu máli.

Að lokum vil ég þakka nefndinni fyrir góð störf og enn og aftur, og ég hef sagt það áður í þessum ræðustól, þá er mjög gott að starfa í efnahags- og viðskiptanefnd. Við nýtum styrkleika og þekkingu hvers annars og þar með dýpkum við skilning hvers annars á málum og fyrir það vil ég þakka.