dagskrá þingfundar.
Frú forseti. Það er nú ánægjulegt að heyra þetta og við gátum auðvitað ekki sagt frá þessu hér vegna þess að við getum ekki upplýst hvað á sér stað á fundi með forseta. En við erum samt sem áður vön því að hér séu óundirbúnar fyrirspurnir á mánudögum og fyrirkomulaginu með óundirbúnum fyrirspurnum er sérstaklega ætlað til að efla umræðu, lifandi umræðu, en ekki síður gagnsæi um störf ríkisstjórnarinnar. Við vitum að hér er um að ræða lykilatriði þrískiptingar ríkisvaldsins, þ.e. að Alþingi og einstakir þingmenn hafi eftirlit með störfum framkvæmdarvaldsins og eftirlitshlutverkið snýr einkum að ráðherrum sem bera ábyrgð á stjórnarframkvæmd. Ég bind vonir við það að forseti setji óundirbúnar fyrirspurnir á dagskrá í vikunni og það verði venjubundið tvisvar sinnum, tvo daga, í þessari viku.