156. löggjafarþing — 74. fundur,  30. júní 2025.

dagskrá þingfundar.

[10:03]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil taka undir orð þingflokksformanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks varðandi mikilvægi þess að hér verði óundirbúnir fyrirspurnatímar á meðan Alþingi er að störfum. Það getur komið upp það sjónarmið, virðulegur forseti, að ráðherrar telji þetta óþarft einhverra hluta vegna. Ég vil bara halda því til haga að afstaða hæstv. ráðherra sem sitja í skjóli Alþingis skiptir engu máli í því efni. Það skiptir máli að hér verði þingstörf með sem eðlilegustum hætti verði þeim fram haldið. Partur af því er auðvitað að viðhalda því lýðræðislega aðhaldi sem felst í óundirbúnum fyrirspurnatíma. Ég hafði til að mynda séð fyrir mér að ræða við hæstv. atvinnuvegaráðherra ef hann væri hér til svara í dag því að það er komin upp enn ein ný spurning, virðulegur forseti, í tengslum við veiðigjaldamálið. Ég verð mögulega að biðja virðulegan forseta að hlutast til um að koma því til hæstv. ráðherra í ljósi þess að óljóst er með hvenær hæstv. ráðherra mætir til óundirbúins fyrirspurnatíma innan vikunnar.