dagskrá þingfundar.
Virðulegur forseti. Ég tek undir þessa hvatningu og ég heyrði það sem hæstv. forseti sagði, hún útilokaði þetta ekki. En ég vonast til að fá skýrari svör um að við setjum óundirbúnar fyrirspurnir á dagskrá. Ég er til að mynda enn að bíða spennt eftir því að hæstv. forsætisráðherra og helst hæstv. fjármálaráðherra líka komi hér upp og tjái okkur hvort þau taki undir áhrifamat hæstv. ráðherra, Ingu Sæland, á veiðigjaldsfrumvarpinu þar sem hún kom í fundarstjórn forseta og taldi að sveitarfélögin myndu græða milljarða á því að veiðigjaldsfrumvarpið færi hér í gegn. Það er reyndar ekkert fjallað um það með þeim hætti í frumvarpinu sjálfu né nefndaráliti meiri hlutans þannig að það væri auðvitað mjög æskilegt fyrir okkur þingheim að vita hvort ráðherrarnir og ríkisstjórnin sé einhuga um þetta áhrifamat sem Inga Sæland tjáð okkur hér undir liðnum um fundarstjórn forseta.