dagskrá þingfundar.
Virðulegi forseti. Ég get tekið undir mikilvægi þess að við séum að horfa á óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra tvisvar í viku með hefðbundnum hætti á meðan þing er starfandi. Ég fagna því að forseti telji líkur á því að það verði slíkur fyrirspurnatími seinna í vikunni en ég held að það sé ekki eftir neinu að bíða. Við erum með fimm ráðherra ríkisstjórnarinnar sem eru hérna í dag. Við erum með stór mál, skýrsluna frá OECD í tengslum við menntamálin, leiðtogafundinn í NATO sem væri áhugavert að ræða og fullt af öðrum málum. Ég held að það sé mikilvægt að við höldum virku samtali. Ég verð að segja við þingheim að ég var að koma frá Noregi þar sem er allt annað form á samtali milli minni og meiri hluta og mig langar til að hvetja ríkisstjórnina til að efla það samtal og ég held að það að halda í formið, að hafa óundirbúnar fyrirspurnir, sé hluti af því. Ég hvet okkur til að setja mál á dagskrá með hefðbundnum hætti strax í dag.