156. löggjafarþing — 74. fundur,  30. júní 2025.

dagskrá þingfundar.

[10:16]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka forseta fyrir þau orð að óundirbúnar fyrirspurnir verði til skoðunar, það sé ekki útilokað. En við í stjórnarandstöðunni myndum gjarnan þiggja skýrari svör þar um þar sem þetta eftirlitshlutverk stjórnarandstöðunnar er mjög mikilvægt. Til að nefna dæmi þá er mjög mikilvægt að þingheimur geti rætt við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og ég óska eftir því að forseti hlutist til um að þingheimur geti rætt þær vendingar á fjármálaáætlun sem hafa orðið. Markmiðið um hallalaus fjárlög 2027 er augljóslega fyrir bí og þrátt fyrir að ríkisstjórnin tæki við góðu búi með þann litla halla sem þá var áætlaður er þetta sem sagt fyrir bí og það er mjög mikilvægt að við getum rætt hvaða aðgerðir ríkisstjórnin hyggst grípa til varðandi það.