156. löggjafarþing — 74. fundur,  30. júní 2025.

dagskrá þingfundar.

[10:18]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með fyrri ræðumönnum að það færi vel á að staðfesta það að vera með óundirbúnar fyrirspurnir í dag eða síðar í vikunni og þá hvenær. Þótt þetta sé óundirbúið fyrir ráðherrana þá þurfa menn að undirbúa sig og það er að mörgu að hyggja, mörg stór mál enn hérna í meðförum þingsins. Ég tel að ef það er á annað borð vilji þingsins að halda áfram störfum þá náttúrlega verður bara að halda í horfinu undir eðlilegum formerkjum og hafa þessa leið til að nálgast ráðherrana vegna þess að það eru náttúrlega stór mál sem koma hér upp, ekki bara veiðigjöldin heldur sömuleiðis, eins og hv. þm. Halla Hrund Logadóttir nefnir, menntamálin og alls konar mál sem við getum ekki sofnað á verðinum gagnvart þegar við erum einmitt á annað borð í vinnunni. Það er mjög mikilvægt að við höfum þennan vettvang þannig að ég tel skipta máli að þetta sé staðfest sem fyrst og þá er það bara frá og við getum haldið áfram störfum.