dagskrá þingfundar.
Frú forseti. Mig langar að koma hérna upp til að ítreka þetta með óundirbúnu fyrirspurnirnar. Mál sem stjórnarmeirihlutinn virðist ekki vilja ávarpa með neinum hætti eru menntamálin. Sérstaklega eru það Samfylking og Viðreisn, frú forseti, sem vilja ekki tala um þessi mál. Hér eru að koma tölur frá OECD, sem hafa reyndar löngu verið vitaðar, um 5–10% framleiðniminnkun á Íslandi. Til að setja það í samhengi erum við að tala um 225–450 milljarða árlega. Þetta er ekkert smámál en þetta er mál sem er bara sett í frystikistuna, frú forseti. Hér er enginn tími til að ræða við hæstv. mennta- og barnamálaráðherra. Þetta er risastórt mál sem Alþingi hefur látið allt of lengi reka á reiðanum. Þessi ríkisstjórn sem er nú við völd sinnir þessu með engum hætti. Það er engin umræða um þetta, hvorki af hálfu þess flokks sem heldur utan um ráðuneytið né hinna flokkanna í ríkisstjórninni. Því er nauðsynlegt fyrir okkur að ræða þessi mál. Við erum að tala um 225–450 milljarða árlega. Veiðigjaldafrumvarpið er bara dropi í hafið miðað við þetta.