dagskrá þingfundar.
Frú forseti. Mig langaði til að koma hérna upp og hnykkja á mikilvægi þess að fá skýr svör varðandi það hvenær forseti hyggst hafa óundirbúnar fyrirspurnir núna í vikunni. Það er ýmislegt sem þarf að ræða. Hér situr ríkisstjórn sem segist ætla að efla geðheilbrigðisþjónustu um allt land. Búið er að loka þjónustu fyrir einn viðkvæmasta hóp landsins, honum vísað í annað úrræði sem er núna að fara í fimm vikna sumarfrí. Nýjustu fréttir eru líka af því að Reykjavíkurborg, þar sem Samfylkingin m.a. stýrir, hefur ákveðið að loka starfsstöð Brúarskóla við Dalbraut sem sinnir viðkvæmum hópi barna og ungmenna á barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Mér skilst að Landspítalinn hafi ekki fengið svör frá borginni um hvar og hvernig börnin muni stunda nám í haust, en við vitum það öll að hér er skólaskylda í landinu. Þannig að það er ýmislegt sem þarf að ræða og enn og aftur bið ég forseta um að gefa okkur skýr svör um hvenær hún hyggist hafa óundirbúnar fyrirspurnir í vikunni.