kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil koma hér upp og fagna því að við séum að klára þetta mál. Ég vil þá minna á þá fyrirvara sem við gerðum við málið, að vilji þingsins væri gerður aðeins skýrari um að það væru engin vafamál um hvaða íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga myndi falla þarna undir, af hverju brunabótamatið myndi ekki gilda við mögulegan kaupsamning og annað slíkt.
Að lokum vil ég minna hæstv. ríkisstjórn á Grindavík og stöðuna þar. Það eru margir sem bíða eftir svörum um hin ýmsu mál. Óvissan hefur verið næg og legg ég til að við gerum þetta eins hratt og örugglega og við getum til að eyða eins mikilli óvissu og hraða þar uppbyggingu og endurreisn af því að það er betra fyrir andlega heilsu og samfélagið í heild sinni.