kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með síðasta ræðumanni og þingmanni Suðurkjördæmis um mikilvægi þess að klára þetta mál og mikilvægi þess líka að efla skýrleika sem því tengist. En ég vil líka hrósa fyrir það að við séum á annað borð að lengja þessa fresti. Það er ótrúlega mikilvægt fyrir samfélagið í Grindavík. Ég vil líka segja að það eru nokkrir óleystir hnútar. Það eru ákveðnar fjölskyldur sem hafa fallið milli skips og bryggju þegar kemur að húsnæðislausnum, það eru fyrirtæki sem sakna þess mjög að það sé ekki meiri fyrirsjáanleiki varðandi rekstrarstuðning. Ég vil hvetja ríkisstjórnina til dáða í því að halda áfram með málefni Grindavíkur því að þau eru enn þá jafn mikilvæg og þetta eru raunverulegar áskoranir sem við getum leyst hér saman.