156. löggjafarþing — 74. fundur,  30. júní 2025.

mál á dagskrá þingfundar.

[10:27]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Það voru engin viðbrögð við beiðni minni sem kom fram hér í seinni ræðu minni í fundarstjórn áðan varðandi það að virðulegur forseti hlutaðist til um það að veiðigjaldamálið yrði sent til nefndar með aðstoð virðulegs forseta núna innan 2. umræðu til að nefndarmenn eigi möguleika á að glöggva sig á þeim sjónarmiðum sem fram koma í dag varðandi það, eins og málið liggur núna eftir breytingartillögu hv. meiri hluta nefndarinnar, að það sé í fimm tegundum verið að leggja á veiðigjald út frá ofreiknuðum hagnaði. Það er algjört lykilatriði að nefndarmenn eigi möguleika á að átta sig á hvort þetta sé raunverulega staðan því þetta eru án nokkurs vafa mistök en ekki þau fyrstu í málinu. Mig langar til að kalla eftir því að virðulegur forseti upplýsi um þetta af því nú er veiðigjaldamálið á dagskrá hér til umræðu að aflokinni þeirri atkvæðagreiðslu sem nú er í gangi og það skiptir máli að það komi viðbrögð við akkúrat þessu því það er ótækt að við höldum áfram umræðunni hér á meðan þetta atriði, sem ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki áttað mig á, af nógu er að taka samt, (Forseti hringir.) — þetta er atriði sem skiptir máli og sem nefndin verður að fá svigrúm til að glöggva sig á.