156. löggjafarþing — 75. fundur,  1. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[00:00]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Mig langaði að klára að fjalla um umsögn Byggðastofnunar. Það náðist ekki í síðustu ræðu. Í grunninn er Byggðastofnun svolítið sérstök stofnun. Hún fer með byggðamálin í landinu. Þar eru helstu sérfræðingar landsins í byggðamálum á vegum ríkisins. Það var svo sérstakt að það var ekki orðið við þeirri beiðni minni hluta atvinnuveganefndar að Byggðastofnun kæmi til að ræða sína umsögn um þetta frumvarp um veiðigjöldin. Umsögnin er áhugaverð, bæði í þessu máli frá Byggðastofnun og síðan aftur í tengslum við strandveiðarnar. Þetta tengist allt. Í þessari umsögn sem ég fjallaði um í síðustu ræðu að hluta og tengist sérstaklega málefnum Vestfjarða þá er einmitt komið inn á þennan sértæka byggðakvóta, þessi 12 þorp sem eru í sjávarútvegi sem fá úthlutað úr sértæka byggðakvótanum og þar eru samtals 2.550 tonn einmitt til sjávarútvegsþorpa á Vestfjörðum sem koma því, og þessi starfsemi sem er stjórnað af hálfu varðandi sérstaka byggðakvótann — eru þetta um 400 manns sem hafa viðurværi sitt, störf hjá þessum fyrirtækjum, sem sértæki byggðakvótinn kemur að.

Á Þingeyri, sem hefur verið til umræðu í dag, eru einmitt um 500 tonn sem koma af sértæka byggðakvótanum þangað og Íslenskt sjávarfang fær þessi 500 tonn og hefur síðan aðgengi að frekari afla og á Þingeyri tengjast 25–35 störf þessu ákveðna fyrirtæki. Það er áhugavert að fara í gegnum þetta allt saman. En mig langar, með leyfi forseta, að lesa úr seinni hluta þessarar umsagnar Byggðastofnun þar sem stendur:

„Í skýrslunni „Auðlindin okkar – sjálfbær sjávarútvegur“ sem gefin var út af matvælaráðuneytinu í ágúst 2023 segir á bls. 79 um áhrif gjaldtöku: „Álagning veiðigjalda ætti að öðru óbreyttu að leiða til aukinnar hagræðingar, þar sem þau fyrirtæki sem ekki geta staðið undir gjaldinu hverfa úr greininni annaðhvort með því að leggja niður starfsemi eða með því að sameinast öðrum fyrirtækjum. Skýrar vísbendingar eru um stærðarhagkvæmni í íslenskum sjávarútvegi og sýnt hefur verið fram á að álagning veiðigjalda leiði til samruna fyrirtækja í greininni þannig að þeim fækkar á sama tíma og þau stækka.“ Ástæða er því til að hafa áhyggjur af minni sjávarútvegsfyrirtækjum í fámennum sjávarbyggðum vegna boðaðra breytinga á veiðigjöldum. Fyrirtækjum sem oftar en ekki eru hryggjarstykkið í atvinnulífi viðkomandi byggða og hafa sum hver staðið höllum fæti undanfarin ár.“

Ég endurtek þessa setningu, með leyfi forseta, sem stendur í umsögn Byggðastofnunar um veiðigjaldafrumvarpið:

„Fyrirtækjum sem oftar en ekki eru hryggjarstykkið í atvinnulífi viðkomandi byggða og hafa sum hver staðið höllum fæti undanfarin ár. Stofnunin telur því mikilvægt, verði frumvarpið að lögum, að þeir auknu fjármunir sem þá munu renna í ríkissjóð verði nýttir til uppbyggingar innviða veikari byggðum landsins.“

Þetta eru svolítið fréttir dagsins að vestan, þá er áhugavert að setja þetta í ákveðið samhengi. Raunverulega í strandveiðimálinu er — þar sem reyndar Byggðastofnun kom til okkar í hv. atvinnuveganefnd í hálftíma ásamt Hafrannsóknastofnun, mjög stutt heimsókn og ekki gáfust færi á að klára allar spurningar í þeirri heimsókn frá nefndarmönnum. Þess vegna er svolítið áhugavert bara allt þetta samhengi hluta varðandi hvernig hefur verið staðið að málum í tengslum við þessi mál. En Byggðastofnun hefur miklar áhyggjur af einmitt þessu samhengi hlutanna sem snýr að þessum 12 sjávarútvegsþorpum víðs vegar um landið og sértæka byggðakvótanum. — Ég hef lokið máli mínu að sinni og kem aftur síðar.