veiðigjald.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til veiðigjalda. Ég held að það sé ágætt fyrir okkur öll að velta því fyrir okkur: Er okkar sjálfsaflatekjum, því sem við fáum í laun, því sem við tökum inn af tekjum betur borgið í okkar vösum og við ákveðum hvað við gerum við féð eða er fénu betur komið í höndum ríkisins? Ég er nokkuð viss um að flestir svari því þannig til að því fé sem við öflum okkur sjálf er best varið af okkur sjálfum. Við pössum upp á okkar eignir betur en mögulega eignir annarra. Það er algerlega þekkt að fólk hugsar sig tvisvar um þegar það er þess eigið fé, eigin eigur, eigin verðmæti sem er verið að handleika en þegar það er verðmæti annarra. Sumar stjórnmálastefnur ganga út á að taka fé frá almenningi og þeir telja að þeir séu best til þess fallnir að ráðstafa þessu fé en ekki almenningur. Það eru vinstri stefnur sem ganga út á þetta. Þau samfélög sem hafa aðhyllst þetta hafa langflest endað einhvers staðar úti í skurði. Það sýnir sagan ítrekað. Það er vegna þess að þegar við leggjum eitthvað á okkur og uppskerum laun erfiðisins þá finnst langflestum það eðlilegt að við fáum að ráðstafa því fé sjálf. Það er góð tilfinning að hafa sáð einhverju, horft á uppskeruna koma, skorið upp og dregið björg í bú. Það kallar oft á það sem við köllum síðan eitthvað sem er nýsköpun. Við reynum að gera hlutina á hagkvæmari hátt, stytta tímann sem það tekur að sækja verðmætin, fara betur með verðmætin, búa til nýjar leiðir til að afla verðmætanna. Allt þetta hefur sjávarútvegurinn gert og hann hefur gert það og getað gert það vegna þess að sem betur fer hefur sjávarútveginum síðustu ár og áratugi verið búið það umhverfi að það hefur orðið eitthvað eftir í sjávarútveginum sem er hægt að taka áhættu með. Það er hægt að prófa nýja hluti, hvort þeir gangi upp. Þetta kallast nýsköpun. Þarna erum við að stækka kökuna í þágu allra. Það sem gerist þegar kakan er stækkuð er að þá fær ríkissjóður meiri heildarskatttekjur. Það þýðir að allir hagnast. Það er hægt að fara í meiri samgöngubætur, styðja heilbrigðiskerfið, menntakerfið og löggæsluna, alla grunnþjónustuna, en ef kjarkurinn og áræðnin er tekin af fólki, fólki refsað fyrir það að ganga vel og ganga vel um auðlindina þegar fólk hefur tekjur af því sem það er að gera, ef það finnur að krumla ríkisins seilist ofan í vasann hjá fólki er það ólíklegra til að leggja aðeins meira á sig þennan daginn eða þessa helgina til að ná meiri árangri ef vissan um að ríkið muni taka stóran hluta þess ávinnings sem þetta aukaframlag kemur til með að gefa; þetta er í raun pólitíkin í því sem við erum að hugsa um hér núna í þessu máli. — En ég sé að tíminn er liðinn og bið hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá því að ég á aðeins eftir að ræða þetta mál betur.