veiðigjald.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér miklar skattahækkanir vinstri stjórnarinnar, fyrirhugaðar á eina atvinnugrein. Að baki liggur ekki mikill undirbúningur heldur fyrst og fremst von um að þetta muni gera hæstv. ríkisstjórn vinsæla vegna þess að skoðanakannanir hafa sýnt að fólk sé tilbúið til að láta þennan atvinnuveg greiða meiri skatta, en nú þegar greiðir hann meira en aðrar atvinnugreinar. Að vísu eru þessar skoðanakannanir líka á hinn veginn, þ.e. þegar fólk er spurt nákvæmar út í þetta þá finnst fólki ekki sanngjarnt að þessi atvinnugrein sé með þessa ofurskatta sem hæstv. ríkisstjórn hefur í huga. En þið heyrið oft sagt, sérstaklega af vinstri mönnum, að útgerðin geti borgað miklu meira og hún sé aflögufær.
Virðulegur forseti. Útgerð er ekki sama og útgerð. Það eru ekki öll útgerðarfyrirtæki eins. Það eru til stór útgerðarfyrirtæki á íslenskan mælikvarða en þau eru ekki stór á alþjóðlegan mælikvarða. Ef við berum okkur saman við Evrópu þá eru mun stærri útgerðarfyrirtæki sem íslensk fyrirtæki keppa við í Noregi. Ég þekki ekki stærðirnar í Evrópusambandinu en hins vegar veit ég að í Evrópusambandinu eru útgerðirnar með fólk sem vinnur láglaunastörf ólíkt því sem gerist hér. Við erum hins vegar á Íslandi með stór fyrirtæki á íslenskan mælikvarða þó að þau séu bara meðalfyrirtæki á alþjóðlegan mælikvarða og svo erum við með lítil og meðalstór fyrirtæki sem eru auðvitað mjög lítil á alþjóðlegan mælikvarða.
Gott og vel, hæstv. ríkisstjórn ætlar að skattleggja hressilega, þúsundir milljóna á hverju ári til viðbótar þessum skattlagningum. Hver heldur ríkisstjórnin að geti borgað þessa skatta? Þau eru ekki öll eins. Það er augljóst að það er stærðarhagkvæmni og nú hafa þessir extra skattar sem eru á útgerðinni orðið til þess og það hefur verið gagnrýnt að þeir leggjast í rauninni þyngra á lítil og meðalstór fyrirtæki, sem hefur ýtt undir samþjöppun, ýtt undir það að þau annaðhvort sameinist eða selji sínar aflaheimildir. Hvað ætlar hæstv. ríkisstjórn að gera í því? Jú, hún ætlar að bæta í þetta. Hún ætlar að koma með frumvarp og gera það að lögum sem gerir það að verkum að litlu og meðalstóru útgerðirnar þurfi að borga enn meira.
Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson var að lesa hérna úr skýrslu sem var sannarlega ekki skrifuð af Sjálfstæðismönnum þar sem hann benti á hið augljósa, að hættan við aukna skattheimtu er sú að litlu og meðalstóru fyrirtækin muni sameinast eða selja sínar aflaheimildir. Auðvitað er það þannig að þú þarft örugglega ekki nema eitt, tvö fyrirtæki til að veiða allan aflann á Íslandsmarkaði. Það væri ekkert risafyrirtæki á alþjóðlegan mælikvarða. En hvaða afleiðingar hefur þetta, virðulegi forseti? Hvaða afleiðingar hefur það ef við setjum hér lög sem ýta enn frekar undir samþjöppunina sem nú þegar er orðin ansi mikil? Jú, þetta hefur þær afleiðingar að litla bæjarfélagið, sem er með litlu og meðalstóru útgerðirnar sem eru stórar fyrir það bæjarfélag — það er mikil hætta á að viðkomandi útgerð hætti á viðkomandi stað. Það eru áhyggjurnar. Þess vegna eru öll sveitarfélögin að senda inn umsagnir. Það er ekki vegna þess að fólkið í stjórn sveitarfélaganna hafi bara ekkert annað að gera, sitji allan daginn og glápi út í loftið og hugsi: Já, loksins kom tækifæri til að skrifa umsögn. Það er ekki þess vegna. Það er vegna þess að þetta fólk sem býr á þessum litlu stöðum hefur áhyggjur af því að þessi ofurskattlagning, af því hún er ofurskattlagning, muni verða til þess að fyrirtækið sem er öxullinn í viðkomandi bæjarfélagi muni ekki starfa áfram í bæjarfélaginu. Það er það sem við erum að reyna að vekja hv. stjórnarþingmenn — sem eru því miður í einhverri froðu, geta ekki sett sig inn í mál og virðist vera nákvæmlega sama um smærri byggðir þessa lands, virðist vera nákvæmlega sama um litlar og meðalstórar útgerðir (Forseti hringir.) í þessu landi.