veiðigjald.
Frú forseti. Ég ætla hér, eins og ég nefndi í síðustu ræðu minni, að fara stuttlega í gegnum álit KPMG Law, lögfræðiarms KPMG hér á landi. KPMG tók það upp hjá sjálfu sér, ef ég skil rétt, að senda inn þessa umsögn. Það var ekki óskað sérstaklega eftir henni. Hún er sérstaklega áhugaverð margra hluta vegna og ég ætla aðeins að koma inn á þau sjónarmið sem hér eru rakin. Það segir hér, bara til að ramma þetta inn í byrjun, með leyfi forseta, undir kaflanum Markmið og tilgangur lagabreytinga:
„… tilgangurinn með breytingunum sé að auka fyrirsjáanleika og einfaldleika við ákvörðun veiðigjalds.“
Svo segir nokkru síðar:
„Ekki er um að ræða eiginlegar breytingar á útreikningi veiðigjaldsins heldur eru lagðar til breytingar á viðmiðum við útreikning reiknistofns veiðigjaldsins.
Í ljósi þess að um er að ræða hækkun á skatti, eins og veiðigjaldið telst vera, er mikilvægt að þess sé gætt að þetta nýja fyrirkomulag við ákvörðun reiknistofns veiðigjalds standist lög og stjórnarskrárvarin réttindi þeirra aðila sem í hlut eiga.“
Þetta gefur dálítið upp boltann hvað varðar það sem á eftir kemur, virðulegur forseti, og ég mun aðeins reyna að tæpa á.
Í næsta kafla umsagnarinnar, sem er nr. 2 og ber yfirskriftina Um breytingu á viðmiðunarverði og fyrirkomulagi mats, þá er byrjað að fjalla um þau áform að það sé horft til þess að notast við blandað fyrirkomulag til að grundvalla verð og mat á verðmætum og grunni skattstofns þar sem annars vegar er stuðst við upplýsingar um skráð aflaverðmæti og hins vegar við verð á mörkuðum, þar á meðal erlendum mörkuðum. Eins og segir hér, með leyfi forseta:
„Við þessa nálgun vakna ýmis álitaefni sem vert er að benda á.“
Það er nú það sem gerir þessa umsögn KPMG sérstaklega áhugaverða. Í 3. liðnum, sem ber yfirskriftina Álitaefni um notkun erlendra viðmiða við ákvörðun veiðigjalds, þá fer þetta nú að verða spennandi allt saman. Þar segir, með leyfi forseta:
„Ljóst er að þær breytingar sem lagðar eru til fela í sér að hluti viðmiðunarverðs skuli miðast við aflaverðmæti á norskum fiskmarkaði. Notkun slíkra utanaðkomandi viðmiða kallar á vandaða lagasetningu og skýran málefnalegan rökstuðning.“
Því verður varla haldið fram að það hafi tekist vel til að uppfylla þau sjónarmið en sjáum til hvernig vindur fram.
En hér segir áfram, með leyfi forseta:
„Almenn viðmið um skattlagningu í alþjóðlegu samhengi, þar á meðal sjónarmið Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), leggja ríka áherslu á að skattstofnar og mat á þeim endurspegli raunveruleg viðskipti og efnahagslega virkni innan lögsögu ríkis. Sé stuðst við erlenda markaði sem grundvöll skattlagningar þarf að sýna fram á að:“ — Og hér eru taldir upp fimm liðir.
„a. markaðsaðstæður og verðmyndun séu sambærileg;“ — Það liggur fyrir að svo er ekki.
„b. vara sé sambærileg að gerð og gæðum;“ — Það liggur fyrir að svo er ekki.
„c. skipulag virðiskeðju og kostnaðarliðir séu samrýmanlegir;“ — Það liggur fyrir að svo er ekki.
„d. áhrif gjaldmiðlasveiflna séu meðhöndluð á gagnsæjan hátt;“ — Það liggur fyrir að svo er ekki.
„e. og að aðferðafræði verðmats leiði til hlutlægrar niðurstöðu sem tryggir jafnræði aðila.“ — Það liggur fyrir að svo er ekki.
Staðan er sem sagt sú að ekkert þeirra fimm atriða sem þarf að uppfylla til að réttlætanlegt sé að styðjast við erlenda markaði sem grundvöll skattlagningar er uppfyllt, ekki neitt. Þetta eru fimm atriði sem eru tilgreind hér. Ekkert þeirra er uppfyllt. Þetta dregur kannski fram hvers lags gönuhlaup þetta allt saman er að verða.
Hér er í uppsjávarfiski horft sérstaklega til verðmyndunar í Noregi á vöru sem er ólík að eðli og gæðum, og verði augljóslega, skipulag virðiskeðjunnar er með allt öðrum hætti í Noregi en hér er, gjaldmiðlasveiflurnar skýra sig auðvitað sjálfar og þetta mun ekki leiða til hlutlægrar niðurstöðu sem tryggir jafnvægi aðila hvað verðmat varðar. (Forseti hringir.)
Ég mun halda áfram í næstu ræðum mínum að fara í gegnum þessa mjög svo áhugaverðu umsögn (Forseti hringir.) sem mér segir svo hugur að hafi ekki verið lesin í þaula af öllum nefndarmönnum hv. nefndar (Forseti hringir.) því þetta eru þannig athugasemdir að grundvöllur þessa alls er í fullkomnu uppnámi.
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutíma, einnig að það sé hljóð í hliðarsölum á meðan ræðumenn eru að tala.)