veiðigjald.
Frú forseti. Við erum enn að ræða veiðigjöldin. Það hefur kannski meira verið fjallað dálítið mikið um einstaka umsagnir og kannski verið að kryfja ákveðinn hluta af þessu máli. Ég vil segja, frú forseti, að við höfum kannski aðeins týnt okkur í þeirri stöðu sem við erum komin í og væri full ástæða til að rifja upp á hvaða punkt við erum komin núna. Við erum auðvitað búin að fara í gegnum að þetta frumvarp birtist í samráðsgátt. Því miður var þar ekki fullnýttur sá tími sem hefði auðvitað átt að nýta, láta þetta frumvarp vera í a.m.k. tvær vikur. Ég held að þar hafi kannski fyrstu mistökin verið gerð og það gaf aðeins tóninn fyrir framhaldið. Ég held og ætla að leyfa mér að segja það, frú forseti, að það hafi jafnvel þvælst fyrir okkur í umræðu um þetta mál þetta yfirbragð þess að það eigi að flýta málum sem nokkur kostur er og eiginlega hlaupa með þetta í gegn. Þarna tel ég að rangt hafi verið af stað farið. Það var mikill fjöldi umsagna sem birtist um frumvarpið, á annað hundrað umsagnir og margar hverjar bara giska góðar miðað við þann stutta tíma sem var veittur til umsagnar.
Eftir að búið var að mæla fyrir málinu hér var það rætt í löngu máli, ég vil leyfa mér að segja ekki kannski óeðlilega löngu en í þessari umræðu tóku gríðarlega margir þátt. Það sem var jákvætt í þeirri umræðu var að þar voru stjórnarliðar mjög margir. Ég vil leyfa mér að segja, frú forseti, að það hafi gert mjög gott fyrir umræðuna. Þar kom í ljós augljós skoðanamunur á milli stjórnarliða og stjórnarandstöðu og þar kristallaðist í rauninni, ég ætla að leyfa mér að segja bara ákveðinn hugsanamunur um það hvernig þetta frumvarp er samsett. Maður hjó eftir því að það var verið að verja hluti sem hefði kannski verið skynsamlegra að viðurkenna strax að voru ekki nægilega vel útfærðir og kom þá í hlut nefndarinnar að útfæra.
Í framhaldi af þessu fór málið til atvinnuveganefndar. Ég hef hrósað nefndinni áður og ætla að gera það aftur. Það voru mjög margir gestir kallaðir fyrir nefndina. Þar ætla ég að leyfa mér að segja að hafi farið fram góð vinna og mikil vinna og kannski rétt að halda því á lofti því að um atvinnuveganefnd hefur verið mikil gagnrýni uppi sem ég vil leyfa mér að meina að hafi kannski snúist frekar um aukaatriði en aðalatriði þó að ég telji reyndar að það sé ekki skynsamlegt að meina gestum um að koma, það er auðvitað ekki skynsamlegt. Þar er þá annar punktur sem ég held að hefði verið skynsamlegra að halda á, frú forseti, með öðrum hætti því að ef við tökum bara t.d. beiðnir um að Skatturinn kæmi, það þurfti atbeina forseta til að af því yrði. Ég vil meina að þar hafi nefndin því miður kannski eytt óþarfatíma í þref sem hefði verið hægt að leysa í tiltölulega einföldu máli bara með því að boða þessa aðila sem upp á vantaði, og ég ætla að leyfa mér að segja spara klukkutíma fyrir þær mínútur sem þar voru nýttar.
Þegar nefndarvinnunni var því sem næst lokið kom fram nefndarálit meiri hlutans sem mig langar að gera kannski að mínu umræðuefni í næstu ræðu til að við höfum svona aðeins stöðuna eins og hún lítur út og því bið ég forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.