veiðigjald.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að koma inn á í þessari ræðu minni að það er bein tenging við fyrirhugað strandveiðifrumvarp hæstv. atvinnuvegaráðherra núna í haust. Það er nefnilega ekki nóg að þetta frumvarp, eins og kemur fram í öllum þeim umsögnum sem hafa borist atvinnuveganefnd — það hafa borist ótal margar umsagnir eins og hefur verið farið yfir í þeim ræðum sem hafa verið haldnar hér, þá er líka annað frumvarp núna hjá hæstv. ríkisstjórn. Það er strandveiðifrumvarpið þar sem með einhverjum hætti á að gefa í núna. Nú sjáum við að það eru líklega svona tíu dagar eftir af strandveiðinni og þá mun Fiskistofa stöðva veiðarnar. En ef það á að leyfa áframhaldandi veiði þá þarf að taka fiskveiðistjórnarkerfið úr sambandi og á næsta ári og næstu þremur árum á að borga það til baka ásamt því að tryggja 48 daga. Og hvað gerist þá? Jú, við erum með 5,3% pottinn í dag. Innan þessa 5,3% potts eru 10.000 tonn sem fara í strandveiðar. Síðan eru 10.000 tonn sem fara í aðra byggðapotta. Þar er helmingur þess magns, 5.000 tonn, að fara í sértækan byggðakvóta Byggðastofnunar, um 3.800 tonn fara í byggðakvóta og um 1.200 tonn fara í rækju- og skelfiskbætur. Hæstv. ráðherrar hafa sagt í viðtölum að það þurfi að fara að skoða þessa byggðapotta. Og hvað þýðir það? Jú, það gefur okkur vísbendingar um það að það sé ekki nóg að þetta sé það áfall sem byggðirnar verða fyrir út af þessu veiðigjaldafrumvarpi og þau varnaðarorð sem uppi eru núna í umsögnum frá sveitarfélögunum — nei, þá á, til að standa við það loforð Flokks fólksins sem hæstv. ríkisstjórn hefur tekið upp á sína arma, að tryggja 48 strandveiðidaga. Þá þarf að seilast í hina byggðapottana. Það þarf að skerða byggðakvótann. Menn munu mögulega skerða líka sértæka byggðakvótann og ég held að við getum nánast gefið okkur að það verði ráðist að rækju- og skelfiskbótunum.
En hvað eru þessir byggðapottar, virðulegur forseti? Jú, þetta eru byggðakvótar, eins og sértæki byggðakvótinn sem er í sumum sveitarfélögum 400–600 tonn, úthlutað til nokkurra ára í senn. Þarna er verið að tryggja vinnslu. Þarna er verið að reyna að búa til heilsársstörf þar sem eru tengdar saman veiðar og vinnsla í viðkomandi byggðarlagi. Í byggðakvótunum er það þannig að ef þú færð úthlutað tonni þá þarft þú að koma með annað tonn á móti. Það er líka vinnsluskylda í byggðakvótunum. Hvað þýðir þetta? Þetta þýðir að þetta er eitthvert samhangandi ferli. Það er samhangandi virðiskeðja frá veiðunum og í vinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Þetta er ekki í strandveiðunum. 80% af strandveiðikvótanum fara óunnin úr landi í gegnum fiskmarkað þannig að það er engin ábyrgð eða engin skylda að það sé einhver vinnsluskylda fyrir viðkomandi sveitarfélag eða eitt eða neitt. Við verðum að horfa á þetta í heildarmyndinni og sjá samhengið. Ef sum sveitarfélög lenda ekki bara í því höggi og þeim afleiðingum sem verða af þessu veiðigjaldafrumvarpi þá eiga ekki þessi sömu sveitarfélög að lenda jafnvel með sínar minnstu og veikustu byggðir líka í áfalli út af fyrirhuguðu strandveiðifrumvarpi. Þetta tvennt er eitthvað sem við getum ekki látið fara í gegn og látið viðgangast hér.
Virðulegur forseti. Þar sem ég hef langt því frá lokið máli mínu þá óska ég eftir því að verða settur aftur á mælendaskrá.