veiðigjald.
Virðulegur forseti. Mig langar í þessari ræðu minni aðeins að fara yfir eina umsögn sem ég komst ekki í í minni fyrri ræðu þó að ég hafi aðeins talað um hana. Það er umsögn frá Fiskmarkaði Íslands sem mér finnst svolítið athyglisverð vegna þess að það hefur verið talað svolítið um fiskmarkaði bæði í frumvarpinu sjálfu og hér í umræðunni. Meira að segja hafa verið umræður um það hvort allur fiskur eigi að fara á markað. Því finnst mér áhugavert og held að það sé bara mikilvægt að við áttum okkur aðeins á því hvað Fiskmarkaður Íslands segir um þetta frumvarp. Mig langar að lesa hér aðeins upp úr umræddri umsögn. Undir hana skrifa fyrir hönd Fiskmarkaðar Íslands Ragnar Smári Guðmundsson og Einar Guðmundsson. Hér segir, með leyfi forseta:
„Fiskmarkaðurinn gerir alvarlegar athugasemdir við þessa breytingu. Í fyrsta lagi er mikilvægt að undirstrika að fiskmarkaðir á Íslandi ná aðeins til hluta þess afla sem dreginn er á land, og sú verðmyndun sem á sér stað þar er ekki heildarmarkaðar eða raunverulegs aflaverðmætis í virðiskeðju sjávarútvegsins. Í öðru lagi er bent á að ólíkir viðskiptamátar — klukka, miðlun og beinar sölur — leiða af sér mismunandi verðmyndun og aðstæður á mismunandi svæðum landsins hafa þar einnig áhrif. Óljóst hvaða meðalverð er verið að nota í frumvarpinu.“
Þetta er hlutur sem við höfum rætt töluvert um hér og hvaða meðalverð er verið að ræða um og hvernig það er fundið. Ég ætla svo sem ekki að eyða miklum tíma í þessari ræðu minni hér í að ræða um hvernig þetta meðalverð er fundið í frumvarpinu en ég held að það sé mikilvægt að við setjum svona svolítið fyrir aftan okkur umræðuna um þessar tölur í þessu frumvarpi. Þær hafa nú verið alla vega og við vitum að talan í frumvarpinu sjálfu frá ráðherra og síðan sú sem er notuð í nefndaráliti meiri hlutans er ekki sama talan. En gott og vel, við erum búin að fá það staðfest frá Skattinum hvaða tölur við erum að nota. Ég ætla ekki að eyða miklum tíma í það en ég ætla að halda áfram að lesa aðeins upp úr þessari umsögn Fiskmarkaðar Íslands. Þar segir:
„Komi til aukinnar samþjöppunar innan greinarinnar má allt eins gera ráð fyrir að rekstrarforsendur fiskmarkaða muni versna frá því sem nú er þar sem enn erfiðara verður að fá seljendur fisks til að selja hann í gegnum fiskmarkaði.“
Ég verð bara að segja það, virðulegur forseti, að þrátt fyrir allar þessar ræður hér og þá miklu umræðu sem þetta mál hefur fengið í þingsal þá finnst mér þetta einhvern veginn hafa farið fyrir ofan garð og neðan, þessi athugasemd Fiskmarkaðar Íslands þar sem þeir eru í raun og veru að tala um það og segja það bara með beinum orðum í þessari umsögn sinni að þeir hafi áhyggjur af því að staðan muni versna frá því sem nú er, ólíkt því sem hefur komið fram hér í umræðunni. Hér er enn ein jaðargreinin sem við erum að sjá að muni mögulega bera skertan hlut frá borði verði þetta frumvarp að lögum. Það eru ekki bara veiðar og vinnsla, það eru ekki bara þessi tæknifyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki sem byggja á þessari grein heldur erum við að sjá að sömuleiðis muni mögulega rekstrarforsendur fiskmarkaða versna enn.
Virðulegur forseti. Ég hef ekki lokið umræðu minni um þetta mál þannig að ég óska eftir því að vera settur aftur á mælendaskrá.