156. löggjafarþing — 75. fundur,  1. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[00:38]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætlaði að halda áfram að fjalla um umsögn Ragnars Árnasonar, prófessors í fiskihagfræði, sem hann sendi inn við vinnslu þessa frumvarps, sem er um margt mjög fræðandi og athyglisverð og gefur að mörgu leyti innsýn í hagfræði sjávarútvegsins. Ég ætla að lesa, með leyfi forseta, úr upphafi umsagnar hans:

„Engu er líkara en ríkisstjórnin, sem leggur þetta frumvarp fram, telji að sjávarútvegurinn sé eins og uppistöðulind fjár sem einungis þurfi að tappa af án þess að nokkuð annað breytist og hagkerfið í heild einhvers konar sjálfvirk vél sem malli áfram óbreytt hverju sem á gengur. Frumvarpið ber með öðrum orðum vitni um alvarlegt skilningsleysi ríkisstjórnarinnar og viðkomandi ráðherra á sjávarútveginum og gangvirki hans sem og hagkerfinu í heild. Af þeim sökum er í þessari umsögn talið nauðsynlegt að verja alllöngu máli til að útskýra nokkur grundvallaratriði í þessu efni.“

Þarna er hagfræðingurinn að fara yfir það sem við höfum kannski stundum sagt hérna í ræðum, að slík skattlagning eins og hér er fyrirhuguð hefur sannarlega áhrif og áhyggjur af þessum áhrifum, sem geta verið neikvæð í mjög mörgum tilvikum, eru það sem við höfum verið að vara við. Þetta er ekki auðlind sem hægt er að ganga í endalaust, þ.e. skattlagning á sjávarútveg, það hefur áhrif. Það hefur þau áhrif að mínu mati og margra umsagnaraðila að fjárfesting í sjávarútvegi muni dragast saman. Það er ekki einungis að arðgreiðslur sjávarútvegsfyrirtækjanna, þessara stærstu, þessara fjögurra, fimm sem þetta frumvarp á að helst að höggva í — heldur nær þetta miklu víðar. Þetta nær til minni fyrirtækja og meðalstórra fyrirtækja auk þeirra stóru. Þetta mun hafa þau áhrif að þessi fyrirtæki munu endurnýja sín fiskiskip hægar. Þau munu ekki fjárfesta í vinnslu eða nýjum tækjum, jafnvel tækjum um borð. Hingað til hafa þessi fiskiskip okkar, þessi stærstu og öflugustu, verið mjög nútímaleg og nýtískuleg og öflug og ekki bara það heldur hafa þau líka verið umhverfisvæn langt umfram það sem gerist meðal annarra þjóða. Flotinn hefur verið afkastamikill og getað sótt auðvitað afla um langan veg.

Ég óttast auðvitað það, og umsagnaraðilar margir gera það líka, að þetta valdi því að það verði minna um það að þessi skip verði endurnýjuð. Það er auðvitað ekki gott fyrir arðsemi sjávarútvegs ef það er komið í veg fyrir að arðsemin verði með sama eða svipuðum hætti og hingað til eða aukist jafnvel. Ef þessi góða þróun verður stöðvuð, eins og fiskihagfræðingurinn er nú kannski að benda á í sinni umsögn, þá er hætt við því að arðurinn minnki á einhverjum tíma og skatttekjur ríkissjóðs af greininni í heild, ekki bara þetta veiðigjald sem við erum að horfa til að hækka hér heldur almennar skatttekjur sem eru í raun miklu hærri upphæðir heldur en við erum að ræða um í þessum veiðigjöldum og þá er betra heima setið en af stað farið, frú forseti. Ef á að ná í tíkall með hægri hendinni og missa 20 kr. úr þeirri vinstri þá er nú betra að sleppa þessari vegferð. En ég ætla að lesa örlítið meira úr umsögn prófessorsins varðandi byggðirnar. Hann segir hér í umsögn sinni:

„Nálægt 90% af fiskaflanum […] hefur á undanförnum árum verið landað utan höfuðborgarsvæðisins.“

Ég vil benda á, og hef gert það í mínum ræðum, að þetta lendir af mestum þunga á landsbyggðinni, frú forseti, þ.e. þeim byggðum sem við höfum áratugum saman verið að reyna að styðja og byggja upp og búa alls kyns sjóði og stofnanir til að bjarga þessum byggðum um allt land. Nú á að hækka, um helming tæplega, veiðigjöld á sjávarútveginn sem heldur þessum byggðum mörgum hverjum uppi. (Forseti hringir.) — Ég óska þess, frú forseti, að ég verði settur aftur á mælendaskrá.