156. löggjafarþing — 76. fundur,  1. júlí 2025.

varamenn taka þingsæti.

[10:01]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hafa bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Guðmundur Ingi Kristinsson og Jónína Björk Óskarsdóttir verði fjarverandi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi sem varaþingmenn fyrir þau 1. og 3. varamaður á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi, Grétar Mar Jónsson og Ólöf Pálína Úlfarsdóttir, en 2. varamaður á lista hefur boðað forföll. Þá hefur borist bréf frá Dagbjörtu Hákonardóttur um að hún verði fjarverandi frá þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi fyrir hana 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Anna María Jónsdóttir.

Grétar Mar Jónsson, Ólöf Pálína Úlfarsdóttir og Anna María Jónsdóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.