svör héraðssaksóknara um varðveislu viðkvæmra gagna hjá embættinu.
Virðulegi forseti. Þegar ég gagnrýndi afstöðu dómsmálaráðherra til gagnalekamálsins og benti á að málið væri of alvarlegt til að treysta því til stofnana sem annað hvort hefðu takmarkaðar heimildir eða væru hluti af sömu atburðarás svaraði ráðherra því til að hún hefði óskað eftir skýringum frá héraðssaksóknara. Nú liggja þær fyrir. Það sem blasir við er staðfesting á því sem ég og margir aðrir höfum óttast, að eftirlit og öryggi í meðferð viðkvæmustu gagna réttarkerfisins hafi verið algerlega ófullnægjandi. Verklag var óljóst, ábyrgð óskýr og kerfið illa í stakk búið til að verjast misnotkun. En í svörunum er ekki tekin afstaða til kjarnaspurningarinnar, hvort trúnaðarbrestur hafi átt sér stað og hver beri ábyrgð. Þetta snýst ekki um smávægilegt frávik. Þetta snýst um traust á ákæruvaldi, trúverðugleika stjórnvalda og grundvallaröryggi borgaranna gagnvart valdbeitingu ríkisins. Svörin sem ráðherrann kallaði eftir eru ekki til þess fallin að ljúka málinu. Þvert á móti staðfesta þau það sem gagnrýnt hefur verið frá upphafi; að kerfið brást, eftirlitið var ófullnægjandi og ábyrgðin var óljós.
Ég spyr: Hvað ætlar hæstv. dómsmálaráðherra að gera núna? Ætlar hún að treysta áfram á kerfið eða hefur hún pólitískt hugrekki til að kalla strax eftir sjálfstæðri rannsókn?