156. löggjafarþing — 76. fundur,  1. júlí 2025.

svör héraðssaksóknara um varðveislu viðkvæmra gagna hjá embættinu.

[13:34]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og áhuga hennar á þessu efni því að auðvitað er það mjög alvarlegt þegar viðkvæm gögn frá hinu opinbera seytla út úr kerfunum eins og reynd hefur verið í þessu máli. Mér finnst blasa við að í þessu máli séum við að tala um gagnaþjófnað og vitaskuld er það alltaf og ævinlega hlutverk hins opinbera, hvort sem við erum að tala um heilbrigðisstofnanir, ákæruvald, dómstóla, allar þær opinberu stofnanir sem fara með mikilvæg gögn, að gera allt sem í valdi þess stendur til að verjast misnotkun. Við vitum það á sama tíma að þar sem mannfólk er starfandi verður það auðvitað aldrei 100% öruggt. Hver ber ábyrgð? Vitanlega ber kerfið sjálft ábyrgð á því að tryggja öryggi gagnanna. Að því sögðu er veruleiki málsins auðvitað sá að þegar gögnum virðist hafa verið stolið þá er það eins og það er. Grundvallaröryggi borgaranna er undir, traust og trúverðugleiki kerfisins eru undir og ég er einlæglega sammála hv. þingmanni í því.

Eftir því sem ég man best eru um 12 ár síðan að atvik áttu sér stað í máli þessu. Síðan hefur lögum verið breytt. Síðan hefur verklagi verið breytt. Síðan hefur eftirliti verið breytt, til þess að tryggja að ekkert slíkt geti endurtekið sig.

Þingmaðurinn spyr um hvað ráðherra ætli að gera í kjölfarið. Ég hef miðlað þessum svörum til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem fer nú með rannsókn þessa máls og er að skoða það. Fyrir þeirri nefnd fer samflokksmaður þingmannsins, hv. þm. Vilhjálmur Árnason. Mér finnst eðlilegt nú þegar lögregla er með ákveðinn anga til skoðunar, sakamálarannsókn, Persónuvernd er með ákveðinn anga til skoðunar, sérstök nefnd, óháð og sjálfstæð, er með ákveðinn anga málsins til skoðunar, Alþingi er með annað — ég held að það megi alveg horfa til þess í þeirri upptalningu að við séum sannarlega, (Forseti hringir.) sannarlega að bregðast við af þeim þunga sem málið kallar á því að það er til skoðunar hér á sjálfu Alþingi Íslendinga.