útboð á vegum ríkisfyrirtækja vegna aksturs.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína fyrirspurn. Í verkstjórn felst auðvitað að það fer fram ákveðin verkaskipting. Hér er hv. þingmaður að spyrja um útboðsmál sem heyra undir annað ráðuneyti, útboð sem hafa aldrei komið á borð til mín né til minna fagstofnana. Ég þekki ekki þessi tvö útboð eða hvernig nákvæmlega var staðið að þeim en ég legg áherslu á að þær lágmarksreglur sem gilda um vistvæn ökutæki í þessum efnum séu virtar og er boðinn og búinn að fara yfir þetta mál og tek ábendingu hv. þingmanns fagnandi.