útboð á vegum ríkisfyrirtækja vegna aksturs.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka svarið. Ég hef alveg skilning á því að hæstv. ráðherra svari ekki fyrir útboðið en þegar ég var að tala um verkstjórn þá hlýtur það, ef það er áhersla ríkisstjórnarinnar að halda áfram í þessum orkuskiptum sem okkur hefur gengið býsna vel í og uppfylla þau markmið, að vera á verksviði loftslagsráðuneytisins og ráðherrans að tryggja að þau seytli inn í stofnanir ríkisins og að aðrir ráðherrar, sem eru jú með hæstv. ráðherra í ríkisstjórn, fylgi því eftir.
Mig langar í seinni fyrirspurn að spyrja, vegna þess að við höfum séð að fjármálaáætlunin er aðeins byrjuð að gatast og verkið við að ná niður verðbólgunni er að hverfa — sleggjan er týnd sem Samfylkingin boðaði fyrir kosningar — um verkefni sem við erum held ég sammála um, að mikilvægt er að tryggja sveitarfélögunum í landinu hlutdeild í orkuverðinu með því að fara inn í fasteignamatið. Það mun vissulega hafa þær afleiðingar að hækka að einhverju leyti vísitöluna og það mun hækka raforkuverð. (Forseti hringir.) Hvernig samrýmist það og hvernig ætlar ríkisstjórnin að koma til móts við það að halda áfram að reyna að ná niður verðbólgu á sama tíma og þessi áhrif eru augljós í hina áttina?