útboð á vegum ríkisfyrirtækja vegna aksturs.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína seinni fyrirspurn og ég get alveg lofað hv. þingmanni að hamarinn sem fyrri ríkisstjórn beitti á verðbólguna verður skilinn eftir hjá þeirri ríkisstjórn og við notum sleggjuna. Þegar þessi ríkisstjórn var mynduð þá lá fyrir minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, og hvað kom þar fram? Þar kom fram að að óbreyttu yrði viðstöðulaus hallarekstur á ríkinu allt fram yfir þennan áratug. (Gripið fram í.) Nei, ekki allt til 2028. Það var markmiðið sem þið höfðuð sett ykkur en það sem beið okkar var minnisblað sem fór yfir það — það stóð ekki steinn yfir steini þar. Því var spáð að það yrði viðstöðulaus hallarekstur út þennan áratug.
Hvað gerði ný ríkisstjórn? Hún leggur fram fjármálaáætlun sem gerir ráð fyrir því að að ríkisreksturinn verði hallalaus fyrr heldur en fyrri ríkisstjórn hafði gert ráð fyrir. (Gripið fram í: Nei.) (Gripið fram í.) Jú, árið 2027, svo gott sem hallalaus fjárlög (Forseti hringir.) árið 2027. Það er þarna 1 milljarður sem bættist við hérna í þinglegri meðferð. (Gripið fram í: Ekki reyna þetta.)(Forseti hringir.) Fjármálaáætlun núverandi ríkisstjórnar gerir ráð fyrir að við náum hallanum niður fyrr og um leið erum við (Forseti hringir.) að spýta peningum inn í vegakerfið. Um leið erum við að styðja betur við eldra fólk og öryrkja. Um leið erum við að ráðast í (Forseti hringir.) fjárfestingar úti um allt land og um leið erum við að ráðast í meiri hagræðingu (Forseti hringir.) en gerðist nokkurn tímann á síðustu kjörtímabilum. Við erum að fara betur með fé, við erum að nýta peningana til að byggja upp samfélagið okkar og ná fram (Forseti hringir.) hallalausum fjárlögum fyrr heldur en fyrri ríkisstjórn. Það er sleggjan okkar og þetta mun skila árangri, jafnvel þótt við þurfum að beita enn meira aðhaldi (Forseti hringir.) en gert er ráð fyrir í núverandi fjármálaáætlun. [Háreysti í þingsal.]
(Forseti (KGH): Hljóð í þingsal. Forseti beinir því til hæstv. ráðherra og hv. þingmanna að ræðutími í síðara sinn í fyrirspurnatíma er ein mínúta, ekki tvær.)