útreikningur veiðigjalds.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að ræða hér um efnahagslega gúmmísleggju ríkisstjórnarinnar þótt freistandi sé, en mig langar til að beina fyrirspurn til hæstv. atvinnuvegaráðherra um það sjónarmið sem kom fram í gær varðandi það að veiðigjald verði lagt á ofmetinn hagnað miðað við veiðigjaldafrumvarpið eins og það liggur fyrir núna að teknu tilliti til breytingartillögu og nefndarálits meiri hluta atvinnuveganefndar. Nú liggur það fyrir að reikna skuli veiðigjaldið út frá ofmetnum hagnaði, það er kannski of tæknilegt að fara í gegnum það hér í pontu, en hæstv. ráðherra veit til hvers ég er að vísa. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort það hafi verið svona sem ráðuneytið og hæstv. ráðherra sá þetta fyrir sér þegar breytingarnar voru útfærðar og sé svo ekki með hvaða hætti hæstv. ráðherra sér fyrir sér að bregðast við þessum mistökum — nema sjónarmið hæstv. ráðherra séu að hér sé ekki um nein mistök að ræða heldur eigi þetta að vera eins og upp er lagt með núna.