útreikningur veiðigjalds.
Herra forseti. Mig langar bara að segja að einfalda svarið við þessu er að greinar sem birtast í Morgunblaðinu til varnar hækkunar leiðréttingar veiðigjalds eru einfaldlega ekki sami áhrifavaldur í mínu lífi og þær eru í lífi hv. stjórnarandstöðu. Þannig að nei, ég tel ekki ástæðu til að fara enn einn hringinn og leita athugasemda eða viðbragða einhvers staðar annars staðar frá við þessum skrefum. Það er einfaldlega rangt hjá hv. þingmanni að það hafi sífellt verið endurreiknaðar upp einhverjar tölur. Málið hefur bara farið í eðlilega þinglega meðferð. Það hafa verið gerðar breytingar eftir samráðsgátt og breytingar eftir meðferð nefndar. Það er mjög gjarnan gert með þingmál eins og hv. þingmaður þekkir vel. (Gripið fram í.)
Mig langaði til að nota síðasta tímann hérna, vegna þess að það skiptir máli hvernig farið er með staðreyndir, og ég verð að segja að lágkúran sem hér var höfð í frammi af hálfu stjórnarandstöðunnar í gær, þegar því er haldið fram að uppsagnir í fiskvinnslufyrirtæki á Þingeyri megi rekja til þessa máls, er fyrir neðan allar hellur. (Forseti hringir.) Ég ætla bara að biðja ykkur að hafa það á hreinu að það var ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna sem hækkaði fiskeldisgjaldið fyrir ári síðan töluvert. Það gjald er markaðstengt, það er ekki tengt hagnaði. (Forseti hringir.) Við skulum líka hafa það á hreinu að það var ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sem lagði fyrirvaralaust á þannig innviðagjald í ferðaþjónustu að það er að slátra ferðaþjónustunni okkar í afskekktustu og viðkvæmustu byggðum, ef ríkisstjórnin bregst ekki við, sem hún hyggst gera, þannig að förum varlega. Ég legg kannski til í allri vinsemd að hér tali menn saman í vörninni því þetta er vandræðalegt.
(Forseti (KGH): Forseti vill ítreka að ræðutími í síðara andsvari hæstv. ráðherra er ein mínúta.)