breytingar á fiskveiðistjórn og rammaáætlun.
Virðulegi forseti. Ég er hér kominn fyrst og fremst til að hrósa hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, enda jákvæður maður. Bið hann samt í mestu vinsemd aðeins að skoða hvað er að gerast með fjármálaáætlunina því að hún er farin og öll þessi markmið ríkisstjórnarinnar eru farin. En við skulum ekki ræða það núna.
Hæstv. ráðherra er með áherslur sem eru mér að skapi þegar kemur að líffræðilegri fjölbreytni. Ég er ánægður með áherslur hæstv. ráðherra þegar að því kemur. Ég vil þess vegna spyrja hæstv. ráðherra hver viðbrögð hans voru þegar ríkisstjórnin kom með frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórn án þess að fara eftir ráðleggingum vísindamanna, í fyrsta skipti í áratugi. Það sem tapar mest á því að við göngum svona fram er auðvitað lífríkið. Verið hefur þverpólitísk sátt um þetta í áratugi og ég spyr hæstv. ráðherra: Hvernig mótmælti hann þessu, með bókun eða hvernig gerði hann það? Það er útilokað annað en að ráðherrann hafi gert það.
Sömuleiðis hef ég verið mjög ánægður með áherslur hæstv. ráðherra þegar kemur að orkumálum en okkur bregður aðeins þegar við sjáum tillögur frá meiri hluta í umhverfis- og samgöngunefnd um að taka út bestu orkukostina. Við höfum líka áhyggjur af því að hæstv. ríkisstjórn kemur ekki með rammana sem eru tilbúnir inn í þingið þannig að við getum flýtt þessu ferli eins og hægt er. (Gripið fram í.) Af hverju er hæstv. ráðherra að grípa fram í?
Síðan er líka hitt að eini sparnaðurinn í fjármálaáætlun og líka í fjáraukanum er til orkumála á sama tíma og ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála varar við því í áhættumati að það vanti fjármuni, t.d. í jarðvarmaleit á Reykjanesi. Ég spyr því, virðulegur forseti: Er verið að valta yfir ráðherrann í þessari ríkisstjórn? Það er alvarlegt.