breyting á lögum um veiðigjald.
Forseti. Má ráðherra fara fram á milliverðlagningu á sekúndum og bæta við tvær mínúturnar? (Gripið fram í.) En ég þakka fyrirspurnina og þetta er auðvitað nálgun sem farið var vel yfir, þ.e. hvort lagasetningin stæðist ekki jafnræðisreglu sem og önnur mikilvæg viðmið þegar lög eru sett. Það var einfaldlega farið vel yfir það og ég tel enga ástæðu til að óttast að sú verði raunin eða að mála upp þá dökku mynd sem hv. þingmaður veltir hér upp möguleikanum á, án þess að hann sé endilega að ítreka það. En það er rétt, það þarf auðvitað að hafa svona hluti vel í huga, ekki síst þegar kemur að því að leggja á gjöld og álögur á atvinnugreinar og við höfum aldeilis dæmi um að þar er stundum farið af stað með meira kappi en forsjá eins og ég rakti hér áðan í svari mínu við annarri fyrirspurn. En úr því að hv. þingmaður nefnir OECD sérstaklega þá er það nú svo að ég átti þess kost að sitja með forstjóranum í síðustu viku, held ég að það hafi verið, í tilefni af nýrri skýrslu sem er að koma út um Ísland. Þar lýsti hann einmitt, og það kemur reyndar fram í skýrslunni, ánægju með það að verið sé að miða við eða ætlunin sé, svo ég fari ekki fram úr mér, markaðsverð í álagningu þessa auðlindagjalds á fisk, sjávarútveginn. Það er sú nálgun sem almennt er talin fýsileg þegar verið er að reikna út gjöld sem lögð eru á náttúruauðlindir. Það er náttúrlega nokkuð sem mér þykir ánægjulegt að geta komið fram með hér. En að öðru leyti teljum við okkur hafa farið það vel yfir þetta mál að ekki sé hætta á þessari dökku mynd.