breyting á lögum um veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem mér heyrist vera fyrst og fremst um það hversu miklu KPMG eða önnur ráðgjafarfyrirtæki eftir atvikum eigi að ráða för við lagasetningu. Ég er búin að svara spurningunni. Hafi KPMG einhverja aðra skoðun þá er það bara þannig. Ég er haldin mikilli tilfinningagreind og hef áttað mig á því að hér er stjórnarandstaðan á annarri skoðun en ég er og stjórnarmeirihlutinn um þetta tiltekna mál og KPMG fellur þá bara undir þann hatt ef rétt er eftir haft. Ég hef ekki lesið þessa skýrslu í kjölinn og ætla ekki að gera hana né aðrar skýrslur keyptar af ráðgjafarfyrirtæki úti í bæ að sérstöku umfjöllunarefni hér. Hún hefur sennilega verið tekin til skoðunar í meðförum nefndarinnar. Ég geri fastlega ráð fyrir því. Ég veit að nefndin hefur starfað af þannig fagmennsku og tekið tillit til fjölda gagna. (Forseti hringir.) En ég sé ekki af hverju ég ætti, þrátt fyrir að það sé beiðni hv. þingmanns, (Forseti hringir.) að gera þessa tilteknu skýrslu að einhverju sérstöku umfjöllunarefni í málinu. — Ég biðst afsökunar.
(Forseti (KGH): Það er móttekið.)