dagskrá þingfundar.
Herra forseti. Ég ætla að taka undir orð hv. þingflokksformanns Framsóknar, Ingibjargar Isaksen. Svo það velkist enginn í vafa um það þá er dagskrárvald hvers einasta dags í þingsalnum í höndum forseta og meiri hluta þingsins. Einhverra hluta vegna, þrátt fyrir að það sé svona langt liðið á sumarið og svo gríðarlega mikill fjöldi mála sem enn bíður 2. umræðu, er enn kosið að hafa veiðigjaldaumræðuna hér á dagskrá. Það er ákvörðun forseta og meiri hlutans. Og bara svo það sé enginn misskilningur um það þá mun ekki standa á stjórnarandstöðunni og hún mun ekki gera neina einustu athugasemd við það ef það er tekin ákvörðun um að færa veiðigjaldaumræðuna aftar á dagskrána svo það sé hægt að koma öðrum málum að sem hafa enn ekki fengið kannski tilhlýðilega athygli hér í þingsal. Stjórnarandstaðan gerir engar athugasemdir við það dagskrárvald forseta ef það verður niðurstaðan, svo það sé algerlega á hreinu.