dagskrá þingfundar.
Virðulegur forseti. Nú erum við að ræða um það hvernig eigi að raða upp dagskrá og það er alveg rétt sem sagt er að dagskrárvaldið er í höndum forseta eins og við öll vitum. Það er auðvitað verið að bregðast við því að stjórnarandstæðingar hafa talað þannig að það þurfi að ræða mikið og margt og lengi í þessu máli. Þetta eru orðnar 30 ræður hjá einhverjum eða að verða 30 ræður, milli 20 og 30 ræður er algengt. Ræðurnar eru orðnar 1.400–1.500 talsins, en enn eru menn samt að boða að það þurfi að ræða meira. Þetta er auðvitað það mál sem er kannski helsta fyrirstaðan í þinglokasamningum þannig að mér finnst þessi beiðni auðvitað bara áhugaverð í því ljósi.
Ég var gagnrýndur í gær þegar ég sagði að nú væri hollt að lækka spennustigið hér í salnum. Eftir óundirbúinn fyrirspurnatíma held ég að stjórn og stjórnarandstaða, ekki síst kannski við þingflokksformenn og fleiri, ættum að vinna aðeins meira með þau orð frekar en að gagnrýna þau. Eins og ég heyrði sagt í morgun: (Forseti hringir.) Alþingi Íslendinga er ekki á góðum stað akkúrat núna. Ég vona að það ágæta samtal þingflokksformanna sem var um helgina geti haldið áfram og við getum þá í raun og veru lokið störfum Alþingis með þeirri reisn sem Alþingi á skilið.