156. löggjafarþing — 76. fundur,  1. júlí 2025.

dagskrá þingfundar.

[14:18]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigmari Guðmundssyni þegar hann segir að það væri skynsamlegt fyrir forystumenn flokkanna og þingflokkanna að tala saman. Hér er verið að tala um að það sé að verða Íslandsmet í umræðu um eitt mál, veit það ekki. Ég veit hins vegar að þetta er Íslandsmet í því að tala ekki saman, forystumenn flokkanna, við þinglok. Ég fullyrði það. Það væri mjög góð hugmynd að menn reyndu að finna einhverjar lausnir því að auðvitað vitum við að dagskráin er hjá ríkisstjórninni. Ég tek líka undir með hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni að það er grafalvarlegt mál, virðulegur forseti, þegar meira að segja ríkisstjórnin veit ekki hver staðan á fjármálaáætlun er. Hæstv. ráðherrar eru með þá hugmynd í kollinum að hér séu á leiðinni hallalaus fjárlög, eins og var sagt á blaðamannafundi, virðulegur forseti. Við verðum að ræða þetta og það þýðir ekkert að gera það á einhverjum tveim tímum. Þetta eru stóru málin. (Forseti hringir.) Þetta er stóra málið. Ég vonast til þess að úr samtali forystumanna þingflokka og flokkanna komi sú niðurstaða, (Forseti hringir.) virðulegi forseti, að menn ræði grunninn að okkar ríkisfjármálum, sem er fjármálaáætlun.