156. löggjafarþing — 76. fundur,  1. júlí 2025.

dagskrá þingfundar.

[14:21]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla bara að fá að taka undir hér með þingflokksformönnum sem hafa farið yfir það að dagskrárvaldið er forseta. Ég hefði sjálf mikinn áhuga á að ræða önnur mál sem eru á dagskrá í dag en það á ekki að stilla málum þannig upp að hér þurfi að klára einhverja ákveðna umræðu, sem allir vita að er í miklum ágreiningi, til að önnur mál komist á dagskrá. Ef stjórnarmeirihlutinn og ef forseti Alþingis metur þau mál það mikilvæg að þau þurfi að fá hér afgreiðslu á Alþingi þá er bara ósköp eðlilegt að setja þau strax á dagskrá. En að því sögðu þá tek ég undir að það er ágætt að lækka spennustigið. Það er líka ágætt að við munum öll að vera heiðarleg í samskiptum við hvert annað.