dagskrá þingfundar.
Virðulegur forseti. Mig grunar að hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, hafi eitthvað misskilið orð mín og mögulega fleiri hér áðan, að taka í það með jafn jákvæðum hætti og raunin er núna að virðulegur forseti geri breytingar hér á. Ég hafði bara séð úr mörgum áttum frá stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar að það þyrfti að ræða önnur mál frekar en veiðigjaldamálið. Þetta voru bara vingjarnleg viðbrögð við því, bara þannig að það sé nálgunin sem hér er verið að leggja til. Ég áttaði mig einmitt á því sem hv. þingmaður benti á, þetta eru mál sem hefur verið „tappað af“ smá umræðu af. Það kom mér á óvart til að mynda að fjármálaáætlun, sem svo sannarlega þyrfti að komast af stað hér í umræðu, væri ekki á þessum lista. En þetta eru, eins og hv. þingmaður benti réttilega á, mál sem er búið að ræða eitthvað stuttlega í 2. umræðu. (Forseti hringir.) Það væri sjálfsagt hvað mig varðar að það kæmu önnur mál til skoðunar í þessu samhengi (Forseti hringir.) og vil ég þá sérstaklega nefna fjármálastefnu og í framhaldinu fjármálaáætlun.