dagskrá þingfundar.
Virðulegur forseti. Ég hef orðið mjög gaman að því þegar hv. þm. Sigmar Guðmundsson kemur hér upp og talar um metin og það er gott að það er einhver hér í salnum sem heldur utan um skortöfluna. En ástæðan fyrir því að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins standa hér uppi er ekki að slá einhverju Íslandsmet. Það er af því að hæstv. ríkisstjórn er að slá heimsmet í skattlagningu á eina atvinnugrein. Það á ekki að koma neinum á óvart að á meðan svo er, þegar 80–90% af rekstrarafkomu fyrirtækja fara í opinber gjöld, þá er ekkert skrýtið að þingmenn Sjálfstæðisflokksins standi hér í pontu og berjist á móti því. En ég tek undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa komið hér upp og talað fyrir því að það sé alveg eðlilegt og gott að breyta dagskránni og taka önnur mál fyrir og ekki síst fjármálaáætlun sem þarf að ræða vel.