veiðigjald.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að ræða hér einn anga af þessu máli sem ég verð að viðurkenna að mér finnst vera svolítið sérstakur. Það er þessi nálgun á þetta veiðigjald sem snýr að uppbyggingu innviða á landsbyggðinni. Sá sem hér stendur er mikill talsmaður uppbyggingar innviða á landsbyggðinni, hefur alltaf verið og hefur barist fyrir því í áraraðir, bæði hér á Alþingi og eins sem sveitarstjórnarmaður í 12 ár og hefur mikinn skilning á því að það er svo sannarlega þörf á innviðauppbyggingu víða, hvort sem það er í vegakerfinu eða öðrum innviðum ríkisins víða á landsbyggðinni.
Það sem mér finnst hins vegar örlítið sérstakt í þessu máli er að tengja þetta veiðigjald við framkvæmdir, sérstaklega vegaframkvæmdir á landsbyggðinni. Umræðan hefur verið að einhverju leyti sú að það sé bara eðlilegt og sjálfsagt að samfélögin leggi til í þessi verkefni og þetta veiðigjald fari til þess að byggja upp þá vegabætur í tengslum við og í námunda við þeirra svæði, innan þeirra svæða. Gott og blessað. Við erum hins vegar með og höfum verið með ákveðin samtryggingarkerfi sem ganga út á það og lög um opinber fjármál kveða á um að það er ekki til neitt sem heitir eyrnamerkt fjármagn í fjárlögum þannig að við höfum tekið þetta í gegnum pott Vegagerðarinnar og deilt þaðan út. Það er náttúrlega svolítið sérstök staða ef við erum komin á þann stað að ætlast til þess að fjármagn á einhverjum stað á landsbyggðinni eigi að borga vegaframkvæmdir í þeirra nærumhverfi, kannski leggja þann skatt aðallega á eina atvinnugrein. Burt séð frá því, virðulegur forseti, finnst mér þetta sérstök nálgun. Ef þessi hugmyndafræði verður ofan á þá er náttúrlega öllum ljóst að þeirri uppbyggingu sem mun fara fram á innviðum landsbyggðarinnar verður afskaplega misskipt eftir því hvernig þessi sveitarfélög eru í burðum til að bera þann kostnað. Ég hef nú sagt það og bara allt í lagi að segja það hér að ég er viss um að það myndu nú einhverjir hrökkva við ef umræðan færi í þá átt að einhver atvinnugrein á höfuðborgarsvæðinu ætti að borga fyrir borgarlínu eða uppbyggingu innviða hér á höfuðborgarsvæðinu. Sú umræða hefur aldrei komið til tals, virðulegur forseti, vegna þess að hún er auðvitað galin, alveg eins og hin nálgunin er mjög sérstök, verð ég að segja.
Ekki nóg með það heldur vill nú bara þannig til að samhliða þessari umræðu höfum við verið að ræða fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 og þar eru stóru línurnar lagðar, stóru línur ríkisins lagðar hvað varðar m.a. innviðauppbyggingu og framlög til Vegagerðarinnar. Þar sem sá sem hér stendur er nú í fjárlaganefnd þá er bara fínt að upplýsa það hér að ég hef lesið þessa fjármálaáætlun nokkuð vel og ítarlega og það er ekkert í henni sem passar við þær fullyrðingar að hér eigi að fara í einhverja innviðauppbyggingu og nota til þess fjármagn úr veiðigjöldum. Það er ekkert talað um það og ekki gert ráð fyrir neinni aukningu í samgöngumál á árunum 2026–2030 í neinu samræmi við þær upphæðir sem áætlað er að náist út úr veiðigjöldunum. Ég held að ef hæstv. ríkisstjórn vill ná einhverjum trúverðugleika inn í þá umræðu, sem ég held að yrði af hinu góða fyrir umræðuna og fyrir íbúa landsbyggðarinnar, til að fá meiri trúverðugleika í þann málflutning, þar sem fjármálaáætlun er opin inni í hv. fjárlaganefnd og mjög auðvelt að gera á henni bragarbætur þar — að menn myndu gera breytingartillögu á fjármálaáætlun þar sem þetta fjármagn yrði eyrnamerkt þá innviðauppbyggingu á landsbyggðinni.